|
Post by blesi on Apr 22, 2008 21:49:07 GMT 1
Djöfull. Steinar meiddur í 13 daga, en verður vonandi klár fyrr. Meiddist eftir aðeins 30 sekúndur af síðasta deildarleik, en gaman samt að sjá varamann hans stíga heldur betur upp og er sá að lofa góðu. Steinar verður þá klárlega ekki með í næsta landsleik, sem er mjög súrt.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 23, 2008 0:56:25 GMT 1
Fatilla, þú metur þetta, láttu mig bara vita ef þú vilt að ég taki hann. En hann yrði væntanlega í b liðinu hjá mér og best er auðvitað að hann fái fulla þjálfun. jonhelgi er að þjálfa hornamenn svo spurningin er hvort hann geti nýtt sér dæmið.
Blesi. Já, sárt að hann skuli hafa meiðst. Hann átti einmitt að vera leynivopnið gegn dönum! En Robert Geirsson kom ótrúlega sterkur inn, þú virðist vera komið með skyttuverksmiðju!
|
|
|
Post by blesi on Apr 24, 2008 17:39:33 GMT 1
Jájá...og ég á einmitt líka menn sem hefðu alveg getað orðið helvíti öflugar skyttur, ef ég hefði bara fleiri laus pláss í þjálfun. Enda var það mjög meðvituð ákvörðun hjá mér að losa mig við Spánverjann sem var að spila aðra skyttuna og leyfa ungu íslendingunum að fá frekar þjálfun.
Jæja, línumennirnir eru nú komnir til KRaula, þannig að við förum vonandi að sjá þrælöfluga leikmenn í þá stöðu innan skamms.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 25, 2008 23:45:54 GMT 1
Við töpuðum gegn dönum í dag 31-28 á útivelli. 'Eg er aldrei ánægður með tap en held að við getum samt verið sáttur. Leiddum fyrstu 50 mínúturnar en síðustu 10 mínúturnar voru mjög slæmar. Væntanlega reynslumunur á ´liðunum sem og ég þarf að skoða áfram hversu mikið menn hvíla.
Hornamenn skoruðu 14 mörk í dag sem er mjög jákvætt. Hins vegar hafa alltaf allir útimenn skorað hjá okkur þar til í dag að Steinar Björnsson gerði það ekki. Hins vegar vildi ég prófa hann þar sem hann kom með hugmynd sem ég hef trú á. Það er að þrátt fyrir að hann sé engin superskytta er hann með fínan hraða og sköpun og ég vildi prófa það þar sem Arnar verður alltaf tekinn úr umferð. Ég er tilbúinn að gera þetta aftur því að ég held að Erlendur hafi skorað þessi 8 mörg þar sem Steinar nýtti sér sköpunina fyrir hann.
Á morgun kemur riðlillinn í HM. Við erum í 28 sæti á ranklistanum sem þýðir að við erum í 5 styrkleikaflokki. Maður bíður spenntur eftir að sjá listann og skoða liðin.
Kem með bréf um það næstu daga. Er hins vegar að skipta um vinnu og verð að minnka eitthvað þessi bréf þó að ég muni koma með þau áfram!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 26, 2008 14:00:01 GMT 1
Jæja, riðilinn er kominn! Núna fer maður að skoða þessi lið. Við eigum Ungvarjana fyrst, á föstudag, en þeir eru klárlega sterkasta liðið og Macadónar það slakasta. Góðu fréttirnar eru þær að Gunnar línumaður verður orðinn klár fyrir leikinn!
World-Championship - Group F Samtals Heima Úti # Land Leikir U-J-T Mörk Marka. Stig U-J-T U-J-T 1 Ungverjaland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 2 Slóvenía 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 3 Tékkland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 4 Brasilía 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 5 Ísland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 6 Macedonia 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0
|
|
|
Post by blesi on Apr 26, 2008 17:13:46 GMT 1
Já, þetta er nú alls ekki svo slæmur riðill. Eins og þú bendir á eru ungverjar klárlega langsterkastir, en við ættum alveg að eiga séns á móti Brasilíumönnum. Við spiluðum nú einmitt einhvern tímann við þá og finnst mér eins og við höfum haft vinninginn þá, þannig að þeir hafa greinilega verið að gera góða hluti með landsliðið sitt. Svo sýnist mér tékkarnir reiða sig mjög mikið á sína helstu stjörnu og er aldrei að vita hvað gerist ef við tökum hann úr umferð, sem ég reikna nú fastlega með. Annars óska ég þér auðvitað bara góðs gengis.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 26, 2008 17:26:47 GMT 1
Takk fyrir það.
Já, ég er mikil keppnismaður og bjartsýnn þar að auki. Svo ég segi það eins og ég meina að ef allt gengur upp gætum við alveg náð 2 sæti. Tel okkur heppna með riðil, hefði td ekki viljað lenda í riðli D með Serbum, dönum og svíum!
Einnig er það hagstætt að fá Ungverja fyrst, allt að vinna í þeim leik og hægt að leyfa sér smáfínstillingar! Brassa held ég að við höfum unnið en þeir hafa hækkað sig verulega í ranking. Tékkar og slóvenar eru þéttir en ég held að það muni ekki miklu á okkur, Brasilíu, slóvenum og tékkum.
Ég legg upp með að við spilum að öllu jöfnu með fimm menn og einn fyrir framan en ég lofa því þó ekki! Væntanlega munum vkið ekki gera það alla leikina, td grunar mig að við stillum upp í 6-0 gagn makadónum því að gegn slakari liðunum er oft betra að vera þéttir alls staðar.
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 28, 2008 19:23:53 GMT 1
[quote author="[at]fattila" timestamp="1208810909" source="/post/45558/thread"]Talandi um þjálfun þá á ég 1 18 ára gutta sem er efni í fínan hornamann og er til búinn að selja hann ef einhver ykkar vill þjálfann. Gæti reyndar sjálfsagt orðið ágætis línumaður líka ef því er að skipta. [/quote] ég er alveg til í að skoða hann ég hef a.m.k. örugglega efni á honum held ég. ég er að þjálfa hornamenn og mun gera það í þó nokkurn tíma í viðbót jafnvel nokkur leiktímabil svo hann myndi passa vel í prógrammið hjá mér.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 29, 2008 23:59:22 GMT 1
Fyrsti leikurinn á HM er á föstudagur. Spilum gegn sterku og þéttu liði Ungverja en þeir eru með ævintýralega sterkt markmannspar. Allt í þessum leik er bónus en maður reynir þó alltaf að stríða! Svo að við munum reyna að hafa góðar gætur á línumanni þeirra. Ég stilli upp því liði sem að ég tel sterkast í augnablikinu hvað varðar leiktíma og byrjunarmenn. Samt freistandi að reyna að nýta enn frekar varamanninn í stöðu skyttu hægra megin því hann er afar fjölhæfur. En alla vegana byrjum við með þessum hætti. 'Eg hef bætt aðeins í hópinn en það eru fyrst og fremst strákar sem ég vil hafa auga með upp á framtíðina. Einn erlendur þjálfari er að þjálfa efnilegan línumann sem gæti alveg gert hluti eftir 3-4 tímabil. Nóg í bili, gott að draga aðeins úr langlokunum mínum áður en menn fá nóg af þeim
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 30, 2008 20:02:38 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1209509962" source="/post/46222/thread"]Nóg í bili, gott að draga aðeins úr langlokunum mínum áður en menn fá nóg af þeim [/quote] Þökkum guði fyrir það! En að öllu gamni slepptu þá eru þær oft góðar langlokurnar.
|
|
|
Post by noteboom on May 3, 2008 0:00:30 GMT 1
Við töpuðum í dag gegn Ungverjum. Áttum aldrei séns. Þeir keyrðu á fáum og eru með sterkt lið, virkilega sterkt. Við misstum Sebastian út af eftir 20 mínútur en hann hafði byrjað vel.
Við eigum næst Slóvena. Þeir keyra á öllum hópnum og samt er enginn með undir 40 í rating!!!
Við mætum samt með fullmannað lið og reynum að stríða þeim. Mun væntanlega taka alla sénsa og klippa tvö út hjá þeim. Höfum allt að vinna en ef allt gengur upp hjá okkur og þeir ná ekki sínu besta er smámöguleiki.
Hlynur er á sölu, markvörður, ef einhver er tilbúinn til að taka feiknalegt efni í þjálfun.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on May 3, 2008 19:59:25 GMT 1
var einmitt að bjóða í kauða. Vinnum Slóvena!
|
|
|
Post by noteboom on May 6, 2008 0:16:53 GMT 1
Ekki tókst það. Það virðist alveg ljóst að Ungverjar og Slóvenar eru lang bestu liðin og Madadónar langlégastir. Við eigum Tékka næst og munum aðeins breyta til frá síðasta leik.
Förum í hefðbundna vörn og Sebastian kemur inn af miklum krafti. Einnig er orðinn hörð barátta í horninu og því mun leiktíminnn aðeins breytast þar.
Ég er kominn í nýja vinnu sem þýðir að ég næ ekki að vera eins aktífur á horninu og ég vildi en það kemur ekki niður á liðinu hins vegar.
Reynum svo að halda landsliðmönnunum heilum í þessari fyrstu umf í deildinni!
|
|
|
Post by noteboom on May 10, 2008 13:57:44 GMT 1
Vonbrigði gegn tékkum Var virkilega að vonast eftir sigri, geri alltaf miklar kröfur til og stundum óraunhæfar en um leið nær maður oft betri árangri. Þess vegna vara ég sérstaklega svekktur því ég mat möguleikana 50-50. 'Eg ákvað að dreifa álaginu örlítið meira en þrátt fyrir það dölum við þegar líður á leikinn. 'Eg hef tekið eftir því að eimreiðin mín, Sigurjón, skorar meira og því jók ég spilafjölda hans. En við virðumst eiga í vandræðum þegar menn taka þessa 2 út og ég átti von á því. En það er erfitt að gera eitthvað í því því að munurinn á næstu mönnum er enn mikill þó að mikil efni séu á leiðinni. Núna þarf maður að reyna að laga rankstöðuna eins mikið og mögulegt til að koma liðinu í sem besta stöðu fyrir næstu keppni. Því að það munar miklu um að komast upp um flokk og ég hef alltaf sett takmarkið á næstu keppni. Miðað við þjálfun sem hinir efnilegu leikmenn okkar eru að fá að þá er framtíðin björt og á það verðum við að horfa. En við þurfum markmannsþjálfun! Haukar, hvað ertu að þjálfa? Þú ert með mikið efni í markverðinum svo ef þú ert að þjálfa markmann væri það snilld
|
|
|
Post by blesi on May 15, 2008 15:58:09 GMT 1
Jæja, leiðinda tap á móti Brössunum...og afar tæpt. En svo fór sem fór og hlýtur markmiðið að vera öruggur sigur á morgun á móti þrælslökum Makedóníumönnum. Mig langar hins vegar að spyrja Noteboom aðeins út í leiktímann á hornamönnunum í leiknum á móti Brasilíu, var þetta meiningin eða gleymdist að breyta? Það skal tekið fram að ég er ekki að gagnrýna þig, heldur leikur bara forvitni á að vita þetta.
|
|