|
Post by noteboom on May 15, 2008 22:44:12 GMT 1
Ég vil byrja á því að byðjast afsökunar á því að hafa ekki fjallað fyrr um leikinn. 'Eg er byrjaður í nýrri vinnu og það hefur farið mikil orka í að komast inn í hana. 'Eg hef undirbúið liðið og pælt í því á fullu en hef ekki haft nægilega orku til að fjalla um þá eins og ég vil.
Nokkur atriði.
1) 'Eg er hrikalega vonsvikinn með að fá ekkert út úr leikjunum gegn tékkum og brössum. Fyrirfram hefði 2 stig verið eðlilegt þó maður vilji alltaf meira en 0 eru mikil vonbrigði.
2) 'Eg tek alltaf málefnalegri gagnrýni Blesi og þú ert alltaf málefnalegur svo ekki hika við að tjá þig. Stundum eru menn sammála og stundum ekki en það er fínt að fá nýjar hugmyndir. Það sem ég hef velt fyrir mér er hvort ég sé ekki að hvíla menn nóg. Ég lagði dæmið þannig upp að Gunnar á línunni þurfi smá hvíld í leikjum og 5-10% virðist virka. Hann er búinn að spila vel í þeim aðstæðum. Erlendur og Sebastgian eru svipaðir leikmenn að getu en samt mjög ólíkir. Þess vegna hef ég reynt að nýta þá báða mjög mikið í stöðu Sh. Arnar er yfirburðarmaður og hann spilar eins mikið og mögulegt er. Hins vegar gerði ég hrikalegan fail með Sigurjón í horninu og ég byðst innilega afsökunar á því. Málið er að ég hef verið tvístígandi með hann þar sem Erlendur er betri leikmaður. Á móti kemur að Sigurjón skorar alltaf mikið, hann er mjög fljótur og það' gæti verið skýringin, og ég haft þá tilfinningu að hann skori meira en Erlendur. Þess vegna hef ég viljað nota hann með honum. 'Eg ákvað þess vegna að auka spilatíma hans eftir tékkaleikinn en eftir á séð var þetta of langur tími. Gegn Makadónum mun hann spila mun minna.
3) Það er algjör krafa um sigur á morgun. Við spilum 5-1 og munum klippa það leikmann sem ég tel bestan þó að hann hafi ekki skorað neitt sérstaklega. Ég hef grun um að hann sé mjög fjölhæfur og hugmyndir er sú að reyna að klippa aðeins á það. Hópurinn er svipaður og í fyrri leikjum, sami reyndar en spilatími breyttur.
4) Planið er óbreytt og það er að vera með lið sem gæti gert eitthvað í næstu keppni. Um leið og mótinu lýkur mun ég skera hópinn niður. Það er, taka þá elstu út nema í þeim störfum sem við þurfum á þeim að halda. Síðan mun maður reyna að einbeita sér að spilatímanum, finna betri línu þar. Er ekki alveg sáttur við mig þar því að ég hef alltaf talið að betra sé að dreifa honum en ég hef ekki alveg fundið jafnvægið þarna þrátt fyrir marga leiki.
|
|
|
Post by noteboom on May 17, 2008 15:16:22 GMT 1
Stór sigur á Makadónum, þó að þeir hafi leitt í nokkurn tíma, og lítið meira um leikinn að segja. Skytturnar okkar, Arnar og Sebastian spiluðu vel og Skarphéðinn átti fínan leik. Við eigum gullmola í Ragnari leikstjórnanda og Gunnar línumaður nýtur sérstaklega góðs af því.
Niðurstaðan í keppninni eru mér mikil vonbrigði. Raunhæft má segja að við hefðu átt að vera með 2-3 sigra en fáum bara einn. Það sem tekur við núna er að reyna að hífa sig upp í ranklistanum, helst í 4 styrkleikaflokk og um leið að gefa mönnum reynslu og hvernig skipting leiktíma hentar okkur best.
Varnaraðferðin 4-2 hefur komið betur út en ég átti von á og reiknað ég með að við munum ávallt spila 5-1 eða 4-2 þar sem við höfum enn ekki styrkleika í 6-0.
|
|
|
Post by noteboom on May 19, 2008 22:46:35 GMT 1
Leikjaprógrammið er komið.
Byrjum á Ítölum. Ég reyni að ná eins hagstæðum úrslitum og ég get úr þessu með því þó að nýta þá einnig til að skoða leikmenn og leiktíma.
Ísland - Ítalía 26/05/2008 - 09:30 - Mán F Pólland - Ísland 30/05/2008 - 16:30 - Fös F Ísland - Evrópa 02/06/2008 - 17:00 - Mán F Ástralía - Ísland 06/06/2008 - 11:00 - Fös F Ísland - Bosnia-Herzegowina
|
|
|
Post by blesi on May 20, 2008 19:58:49 GMT 1
Já, auðvitað tekur það tíma fyrir alla að læra á þessi varnartilbrigði en ég held að ég sé sammála þér varðandi það að spila mikið 5-1 eða 4-2 taktík. Varðandi árangurinn þá ert þú þegar búinn að segja það að hann væri ekki viðunandi, en ég vil ekki vera eins grófur og þú og hefði vel sætt mig við 2 sigra;) Engu að síður líst mér afar vel á þitt starf og tel liðið vera algjörlega á réttri leið. Æfingaleikirnir sem við fengum finnst mér svo vera alveg æðislegir þar sem mótherjarnir eru flestir af svipuðum styrkleika og við og ættum við alveg að geta unnið einhverja af þeim.
|
|
|
Post by noteboom on May 22, 2008 16:34:58 GMT 1
Sammála að því undanskildum að Pólland er mjög sterkt að því er mér finnst.
Ég ætla að láta sem flesta koma eitthvað inn á því ég held, án þess að vita það, að það fái allir einhverja reynslu þegar þeir koma inn á.
'Itali í fyrramálið, spilum 4-2 og tökum þeirra helstu stjörnur út!
|
|
|
Post by noteboom on May 23, 2008 18:51:13 GMT 1
Ekki gekk þetta á móti Ítölum. Arnat og Ragnar áttu stórleik enda lúxus að leyfa þeim að leika lausum hala.
Við leiddum framan af en þeir voru sterkari í seinni hálfleik. Ég lét alla nema einn koma inn á en spurningin er sú hvort að ég hefði átt að láta fleiri varamenn taka virkari þátt í leiknum. Notaði Erlend í dag í stað Sebastian. þetta er spurning, ég er hrifinn af fjölhæfum leikmönnum en ég hef haft það á tilfinningunni að þeir njóti sín ekki eins í nýja varnarkerfinu. Skil það ekki því að þeir ættu að njóta sín enn meira.
Þarf að skoða þennan leik. Næsti leikur er gegn mjög sterkum pólverjum. Leikirnir eftir hann eru hins vegar með fínum möguleikum. Geri mitt besta en ég verð að viðurkenna það að ég er ekki sáttur. Skil ekki alveg hvað er í gangi, ég er landsliðsþjálfari í öðrum leik og gengur vel þar svo að það ætti ekki að vera málið að ég viti ekki út á hvað þeta gengur!
|
|
|
Post by blesi on May 24, 2008 15:38:28 GMT 1
Neinei, enda held ég að það sé alls ekki málið. Nema kannski að því leytinu til að það veit eiginlega enginn alveg hvernig leikjavél þessa leikjar virkar. Framan af var það í raun bara þannig að lið með hærra heildareinkunn leikmanna unnu, nema það munaði mjög litlu og viðkomandi væru á útivelli. Nú er varnarfítusinn kominn í gang en hann er nú eitthvað óskýr ennþá og auðvitað tekur það tíma að læra svolítið á hann. Enn sem komið er er það þó líka þannig að landsliðið er ekkert sérstaklega samkeppnishæft og verðum við bara að gera okkur grein fyrir því, um leið og við auðvitað vonum, og höfum trú á því, að það breytist.
|
|
|
Post by noteboom on May 26, 2008 12:59:19 GMT 1
Jú, það er rétt, við erum að vinna að því að gera liðið samkeppnishæft. Það er uppbygging í gangi og maður þarf að vera þolinmóður. Maður gerir bara svo miklar kröfur til sjálfs síns!
Jafntefli við Pólland í dag á útivelli og ég er mjög sáttur við það. Finnst þetta pólska lið vera gott. Við leiddum mest allan fyrr hálfleikinn en seinni var mjög jafn. Arnar fór á kostum og Sebastian raðaði inn mörkum.
Bæði lið brenndu af tvemiur vítum og það er dýrt í jafnteflisleik!
Evrópa er næst en það lið hefur vaxið mikið. Eigum samt fína möguleika og reynum að nýta þá.
|
|
|
Post by noteboom on Jun 2, 2008 14:23:53 GMT 1
Unnum Evrópu á föstudag. Ég er mikið að hugsa um ranklistann og spila mikið með það í huga þó að ég prófi hitt og þetta í leiðinni!
Eigum ástrala í dag og ég vonast eftir sigri þar.
Síðan fékk ég mikið efni úr unglingastarfinu í dag, Bjarki Arnbjörnsson. Hörku efnileg skytta. Setti hann strax í sölu og vona það að félag sem þjálfar skyttur taki hann að sér. Aðalvandamálið er aldurinn en við sjáum til hvað verður.
|
|
|
Post by noteboom on Jun 6, 2008 15:10:46 GMT 1
Sigur á Áströlum, fannst hann meira sannfærandi en lokatölur gáfu til ykka, og jafntefli gegn Bosníu er niðurstaðan úr síðustu tveimur leikjum. Núna bíðum við eftir næsta skammti!
Varðandi Bosníuleikinn að þá hef ég verið einbeittur á að reyna að ná sem hagstæðustum úrslitum vegna ranklistans. 'Eg hef látið alla spila eitthvað til að fá reynslu en líklega þarf ég að auka spilatíma fleiri varamanna.
Við spiluðum 5 leiki á þessu timabili. Unnum tvö, tvö jafntefli og eitt tap. Við hækkuðum í ranklistanum en ekki er enn ljóst hvað við stöndum þar sem það á eftir að spila fleiri leiki í dag.
Hópurinn er orðinn vel rútínaður þó ég vilji aldrei loka neinum gluggum. 'Eg er farinn að skera niður í hópnum og mun þó halda nokkrum efnilegum inni og taka þá í liðið þegar og ef þeir verða nógu sterkir.
Að deildinni. Toppliðin eru ávallt feikilega sterk en mig finnst hún alltaf að jafnast. Vandinn sem ég stend fyrir sem þjálfari hornamanna er sá að maður verður að kaupa á aðrar stöður og því er ég með full marga útlendinga. En það virðist verða að vera svo því miður.
'Eg læt vita þegar næsti skammtur á leikjaáætlun kemur.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 9, 2008 20:41:56 GMT 1
Verð að deila þessum nýja leikmanni með ykkur fyrir utan það að hann er alveg þokkalega efnilegur hornamaður þá hefur hann svo skemmtilegt viðurnefni og ætti bara skilið að komast í landsliðið einhvern tímann út á það. Gautur 'Iceman' Haraldsson Raðnúmmer leikmanns: 335236 Land: Ísland Lið: HC Reykjavik Úr unglingaliði: HC Reykjavik Fyrverandi lið: HC Reykjavik Vikur hjá klúbbi: Alla tíð Aldur: 18 Hæð: 187 sm Verðgildi: 5 540 Laun á viku: 7 488 kr. Markvarsla: - Fótavinna: 1 Sendingar: 1 Skapandi: 13 Hraði: 13 Vinna án bolta: 17 Vítaskot: - Reynsla: - Úthald: 55 Mörk skoruð í deildinni: 0 Mörk skoruð í bikarnum: 0 Mörk skoruð á ferlinum: 0
|
|
|
Post by noteboom on Jun 11, 2008 15:48:47 GMT 1
Flottur leikmaður sem þú hefur fengið þarna.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 11, 2008 19:28:56 GMT 1
Takk, ég vona að þessi þjálfist jafn hratt og hinn sem ég sýndi ykkur fyrir u.þ.b. 2 mánuðum eða var það lengra síðan?
|
|
|
Post by noteboom on Jun 16, 2008 17:57:49 GMT 1
'Eg var að fá efni, sem er hornamaður. Venjulega myndi ég halda honum en ég get ekki hugsað mér að vera með tengingu í liðinu við Faxa!!! Svo hann er kominn á sölu.
Leikjaplanið er ekki komið og maður er fyrst og fremst að hugsa þróunina á liðinu. Sýnist ný kynslóð vera á leiðinni og framtíðinn þokkalega björt miðað við aðstæður.
Og deildin er rosalega spennandi, þrjú lið í hörkubaráttu og flest hinna liðanna geta tekið stig af þeim á góðum degi!
|
|
|
Post by blesi on Jun 20, 2008 15:44:26 GMT 1
Sælir. Það er orðið ansi langt síðan ég tjáði mig hérna. En þar sem þú hafðir orð á því Noteboom, þá er afar gaman að sjá hvað deildin er að verða jöfn. Það lítur allt úr fyrir að ég þurfi að fara að styrkja liðið ef ég ætla mér að taka hana þetta tímabilið. Markvarðarstaðan er vandræðastaða hjá mér, þar sem ég hef lengi verið að leita að manni með verulega hátt í markvörslu (þar sem hann fær alltaf einhverja þjálfun í fótavinnu og sendingum) en hef ekkert verið að finna. Varðandi landsliðið, þá er það sífellt að styrkjast, og tel ég þar ómetanlegan þinn þátt Noteboom. Loksins erum við komnir með fína hornamenn. Sem áður er línumannsstaðan svolítil vandræðastaða, en ungu línumennirnar hjá KRaulum komi vel út. Ég sé að hann hefur náð í einn 17 ára gutta sem er gríðarlega efnilegur og ef hann fær fulla þjálfun mun hann klárlega verða mikilvægur leikmaður í landsliðinu áður en mjög langt um líður.
|
|