|
Post by noteboom on Sept 20, 2009 0:27:23 GMT 1
Jepp!
|
|
|
Post by noteboom on Sept 21, 2009 19:23:44 GMT 1
Ææææ! Þar fór það! Vonbrigði eftir að hafa horft á þægilega stöðu þangað til í restina!
Spilum slétta vörn í síðasta leik gegn Króatíu!
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 22, 2009 20:27:32 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1253557424" source="/post/72236/thread"]Ææææ! Þar fór það! Vonbrigði eftir að hafa horft á þægilega stöðu þangað til í restina! Spilum slétta vörn í síðasta leik gegn Króatíu![/quote] Mér finnst þessi úrslit út í hött við hefðum átt að vinna leikinn, held að allt hafi verið gert rétt en leikjavélin var ekki á sama máli greinilega.
|
|
|
Post by noteboom on Sept 27, 2009 23:58:51 GMT 1
Jæja, töpuðum fyrir Króötum! Við vorum svo nálægt að mörgu leyti að geta topphluti en samt svo langt frá því!
Núna er komið að því að byggja upp fyrir næstu keppni. Nokkrir orðnir mjög gamlir og tími á að koma nýjum inn. Samt er það meira endurnýjun. Við þurfum engu að síður að finna einn markvörð í viðbót, Björn er orðinn 34!
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 24, 2009 11:33:25 GMT 1
HaMa jólagjöfin mín í ár er þessi ungi risi.
Viggo Kjartansson Raðnúmmer leikmanns: 499454 Land: Ísland Lið: HC Reykjavik Úr unglingaliði: HC Reykjavik Fyrverandi lið: HC Reykjavik Vikur hjá klúbbi: Alla tíð Aldur: 18 Hæð: 190 sm Verðgildi: 9 220 Laun á viku: 11 680 kr. Markvarsla: - Fótavinna: 1 Sendingar: 2 Skapandi: 7 Hraði: 20 Vinna án bolta: 22 Vítaskot: 1 Reynsla: - Úthald: 57 Mörk skoruð í deildinni: 0 Mörk skoruð í bikarnum: 0 Mörk skoruð á ferlinum: 0
|
|
|
Post by noteboom on Dec 26, 2009 22:00:52 GMT 1
Sæl öll og gleðileg jól!
Fyrst vil ég þakka fyrir traustið með því að velja mig enn og aftur! Það er afar ánægjulegt og ég er stoltur af því. 'Eg vil einnig afsaka hve lítið ég hef tjáð mig hérna þar sem af er en það hefur jú verið afar dauft hérna og ég hef eitthvað smitast af því. Við höfum skriðið upp töfluna og erum núna í 20 sæti yfir sterkustu liðin. Ég held að liðið hafi aldrei verið hærra síðan ég tók við! Og við erum komnir með 2 markverði en það var vandamál! Leikirnir sem við höfum spilað eru eftirfarandi:
Ísland 30-31 Slovakia Suður Ameríka 23-28 Ísland Ísland 31-23 Macedonia Frakkland 24-27 Ísland
Ég er mjög ánægður með þetta. Hefði reyndar viljað taka gott lið Slóvakíu á heimavelli en sigurinn á frökkum er frábær!
Við lentum í svakalega sterkum riðli á HM:
Þýskaland Belgía Slóvenía Ísland Bosnia-Herzegowina Asía
Þetta verður all hressilega erfitt og í raun ótrúlegt afrek ef að við verðum í raunverulegri baráttu. En við byrjum 7 á móti 7 inn á og sjáum til hverju það skilar!
'Eg reikna fastlega með að þetta verði mitt síðasta tímabil með liðið. 'Eg er ánægður með heildina en segja má að það hefði mátt endurnýja það aðeins betur þó að liðið sé ekki gamalt miðað við þennan leik.
Gleðileg jól allir saman!
|
|
|
Post by noteboom on Dec 28, 2009 15:20:06 GMT 1
Við mættum 6 besta landsliði leiksins í dag samkvæmt styrkleikalistanum. Belgum en við erum einmitt með þeim í riðli!
Fyrirfram séð urðu flott úrslit, 27-27! En hins vegar er ég nokkuð svekktur því að ég tók ekki eftir því að ein okkar allra besta skytta hafði meiðst en þar er einnig á ferð vítaskytta liðsins! Og það þýddi að Skarphéðinn minn tók fyrstu 3 vítin en hann gerir margt betur en það! Og hann brenndi af þremur vítum! Svo það var frekast fúlt.
Hins vegar gerðist það í fyrsta skipti hjá mér og ég man reyndar ekki eftir að hafa séð það, þó að örugglega séu einhverjir slíkir til, að hann er kominn með 100 í getu í einum lykilflokka hans sem hornamanns!
|
|
|
Post by noteboom on Jan 16, 2010 12:48:19 GMT 1
Sælir.
'Eg hef verið rólegur hér, líklega smitast af því hvað það er rólegt!
Það er ljóst að við komust ekki upp úr riðlinum. Unnum Bosníu og Asíu en töpuðum fyrir belgum og slóvenum. Í sjálfu sér all eðlileg úrslit. Í síðustu umferð eigum við besta liðið í riðlinum, þjóðverja.
Að mínum dómi er ég kominn á svolítinn lokapunkt með liðið og mun því ekki bjóða mig fram næst. Heilt yfir er ég ánægður með frammistöðuna á þessum tíma sem ég hef verið með liðið. Við höfum þokast upp styrkleikalistann jafnt og þétt og það er mjög mikilvægt til að komast í betri stöðu við dráttinn. Það er stöðuleiki í liðinu og grunnur til að byggja á fyrir næstu keppni.
Svo ég vil þakka fyrir mig og óska ykkur öllum góðs gengis.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 16, 2010 17:33:46 GMT 1
Takk sömuleiðis.
|
|