|
Post by jonhelgi on May 30, 2009 11:01:40 GMT 1
Frábært!
|
|
|
Post by blesi on May 30, 2009 23:07:21 GMT 1
Glæsilegur sigur gegn Finnum. Þarna gerði það greinilega gæfumuninn að þjálfarinn okkar (Noteboom) vann heimavinnuna sína, þ.e. stillti liðinu upp og valdi þá leikmenn sem átti að taka úr umferð. Þeir hefðu klárlega átt að taka allavega 1 ef ekki tvo leikmenn úr umferð hjá okkur.
Varðandi leikinn á móti Pólverjum, þá skil ég ekki alveg hvað gerðist þar, varðandi kerfið þ.e.a.s. Voru þeir ekki með alveg sömu skyttur í þeim leik og í öllum hinu leikjunum á mótinu? Svo þykir mér það skrýtið ef leikjavélin er farin að taka upp á því að breyta uppstillingunni þó leikmaður sem á að taka úr umferð spili ekki. Er þá ekki bara einhver annar random leikmaður tekinn úr umferð?
Á heildina litið finnst mér árangurinn í mótinu vel ásættanlegur miðað við styrkleika riðilsins. Í leiknum á móti Austurríkismönnum datt því miður Donnenbauer inn í liðið hjá þeim eftir meiðsli og voru því kolvitlausir menn teknir úr umferð, en það er auðvitað algjörlega ómögulegt að vita hversu virkir þjálfararnir eru og var því allt eins líklegt að hann myndi ekki spila. Í fyrrnefndum leik á móti Pólverjum fannst mér svo að hefði mátt taka skytturnar báðar úr umferð, eins og stóð til. Auðvitað er alltaf hægt að benda á einhver svona atriði og er meining mín alls ekki að ausa skít yfir frábæran þjálfara okkar, Noteboom, heldur bara aðeins að rýna í þetta.
|
|
|
Post by noteboom on May 31, 2009 17:52:46 GMT 1
Þakka hlý orð frá ykkur báðum. Eins og ég hef svo oft sagt f*gna ég gagnrýni og vil fá sem mest af umræðu um liðið. Áskil mér hins vegar allan rétt til að meta hana Varðandi Austurríki að þá var ég að velja á ákveðið lið hjá þeim sem ekki gekk upp. Alveg sammála þér með finnana og satt best að segja skil ég þetta ekki því með sigri voru þeir í úrslitum, alveg sama hvernig Danmörk - Austurríki færi! Að Póllands leiknum að þá virðist ég hafa klikkað þar illilega. Er eiginlega að kveikja á því núna! Ætlaði ávallt að taka báðar skytturnar úr umferð en hins vegar hef ég gert einhvern feil, lesa þetta þó ávallt rækilega yfir, og tekið vitlausan mann. Byðst innilega afsökunar því þetta gæti hafa kostað okkur sigur Hins vegar virðist vera komin breyting í leikjavélina, miðan við þennan leik, að við spilum þá 51 í stað 42. Ef leikmaður er ekki með finnst mér að ættum að taka þann leikmann, sem í stað þess kemur, úr umferð. Varðandi riðilinn er ég mjög sáttur. Við erum í sterkum riðli og í raun þurfti ekki margt að gerast til að við færum mun lengra. Pólland, Danmörk, Finnland, Austurríki eru mjög sterk og það að við séum að berjast við þau af fullum krafti sýnir miklar framfarir að mínum dómi. Við héldum nokkuð okkar róli á ranklistanum, erum í 26 sæti. Núna þurfum við að reyna að nýta æfingarleikina mjg vel og reyna að freista þess að ná 18 sæti og þar með í 3 styrkleikaflokk. Það kemur að því að dráttur í riðla fellur með okkur og þá verðum við að vera vel staðsettir í styrkleikalista. Næstu leikir eru eftirfarandi: 05/06/2009 - 12:00 - Fös F Suður Ameríka - Ísland 08/06/2009 - 12:00 - Mán F Ísland - Macedonia 12/06/2009 - 18:00 - Fös F Mexico - Ísland 15/06/2009 - 12:00 - Mán F Ísland - Bosnia-Herzegowina 19/06/2009 - 17:30 - Fös F Evrópa - Ísland
|
|
|
Post by noteboom on Jun 5, 2009 17:56:27 GMT 1
Gerðum jafntefli á útivelli gegn Suður-Ameríku. Leiddum framan af leik en því miður var hann jafn í restina.
Næst eru það makadónar og mikilvægt, og algjör krafa að vinna þá.
Ef einhverjir vita af íslenskum markmönnum í þjálfun mega þeir láta mig vita, er orðinn stressaður yfir skorti í slíku!
|
|
|
Post by noteboom on Jun 8, 2009 18:56:34 GMT 1
Unnum Makadóna í morgun, 34 - 29. Ekkert meira í raun um það segja. Öruggur sigur og það sem reiknað var með. Eini gallinn var sá að Markús meiddist en hann ætti að vera tilbúinn fyrir næsta leik gegn Mexícó á útivelli. Það verður mjög erfiður leikur, hörkulið sem td gerði jafntefli gegn Spáni fyrir stuttu. En Spánn er eitt sterkasta liðið, svakalegt lið.
Við munum spila 6-0 gegn Mexícó til að róa leikmenn þeirra niður!
|
|
|
Post by noteboom on Jun 12, 2009 19:16:29 GMT 1
Jafntefli á útivelli gegn Mexícó! Mjög ánægður með þetta, leiddum mest allann leikinn en þetta eru flott úrslit að mínum athyglisvert að leikurinn fer 27-27 og liðin brenna samtals af 7 vítum!!!
Notaði nýjan aðalmarkvörð, Bjarka frá teamb. Framtíðarmaður þarna á ferð!
Næst er það Bosnía heima.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 13, 2009 9:51:33 GMT 1
Þú ert að standa þig vel!
|
|
|
Post by noteboom on Jun 13, 2009 14:16:23 GMT 1
Takk fyrir það Erum núna í 26 sæti, þurfum að byrja á að koma okkur í 24 og svo að hækka í 18! Eitt skref í einu!
|
|
|
Post by noteboom on Jun 15, 2009 13:24:33 GMT 1
Unnum Bosníu heima 32-28. Arnar með enn einn stórleikinn!
Næst er það sterkt lið Evrópu, þeir hafa bætt sig mikið, væri sterkt að taka þá!
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 16, 2009 12:02:12 GMT 1
Gangi þér og okkur vel! Áfram Ísland!
|
|
|
Post by noteboom on Jun 19, 2009 18:51:10 GMT 1
Jafntefli á útivelli gegn Evrópu 25-25, eftir að við skoruðum síðustu 4 mörkin en þeir voru sprugnir! Þeir eru rankaðir númer 12 og ég verð að segja það eins og er að ég er mjög ánægður með þessa syrpu! 2 sigrar og 3 jafntefli, yfirleitt gegn mjög sterkum þjóðum og þetta gefur okkur byr undir báða vængi.
Við erum komnir með fína breidd í LS og markmannsstaðan orðin betri hvað breidd varðar. Vonandi kemur feiknalega öflugur þar upp!
|
|
|
Post by blesi on Jun 22, 2009 18:08:20 GMT 1
Ég tek heilshugar undir það hjá þér, þessi syrpa er búin að vera þrusugóð, enda landsliðið í þrusugóðum höndum.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 23, 2009 20:29:31 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1245433870" source="/post/70501/thread"]Jafntefli á útivelli gegn Evrópu 25-25, eftir að við skoruðum síðustu 4 mörkin en þeir voru sprugnir! Þeir eru rankaðir númer 12 og ég verð að segja það eins og er að ég er mjög ánægður með þessa syrpu! 2 sigrar og 3 jafntefli, yfirleitt gegn mjög sterkum þjóðum og þetta gefur okkur byr undir báða vængi.
Við erum komnir með fína breidd í LS og markmannsstaðan orðin betri hvað breidd varðar. Vonandi kemur feiknalega öflugur þar upp![/quote]
Flott!
Hvernig er staðan varðandi LM, skyttur og hornamenn? Ég púllaði einn nokkuð flottann 19 ára LM í gær en hann verður fljótlega 20 ára er það ekki?
|
|
|
Post by noteboom on Jun 24, 2009 1:45:45 GMT 1
Takk fyrir það báðir tveir.
Skytturnar eru góðar en maður vill alltaf sjá fleiri efnilega. Hornamenn eru í góðum málum en gæti orðið gat því miður. 'Eg er að reyna að þjálfa upp efnilega (er með 3 hornamenn í landsliðinu og vil ekki taka þjálfun frá þeim) en hef gengið illa að fá virkilega efnilega menn.
LM, þurfum virkilega á fleirum og sterkari að halda. Fékk mikið efnií dag sem ég setti á sölulista nú þegar.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 24, 2009 19:15:49 GMT 1
Þetta er sá sem ég fékk hann er strax orðinn 20 ára eins og mig grunaði: Oswald 'Iceman' Thorsteinsson Raðnúmmer leikmanns: 457051 Land: Ísland Lið: HC Reykjavik Úr unglingaliði: HC Reykjavik Fyrverandi lið: HC Reykjavik Vikur hjá klúbbi: Alla tíð Aldur: 20 Hæð: 182 sm Verðgildi: 7 420 Laun á viku: 9 872 kr. Markvarsla: - Fótavinna: 2 Sendingar: 10 Skapandi: 22 Hraði: 4 Vinna án bolta: 11 Vítaskot: 4 Reynsla: -
|
|