|
Post by noteboom on May 1, 2009 23:22:41 GMT 1
Jafntefli úti gegn Sviss. Vonbrigði þar sem ég tel að við séum komnir með betra lið. Engu að síður erum við komnir upp um 3 sæti og búnir að hækka um styrkleikaflokk eins og staðan er núna.
Næst er það Evrópa En þeir unnu Slóvena 26-22 í dag. Þeir eru í 10 sæti styrkleikaflokksins en við erum í 24 sæti.
Gerði þau mistök að setja fyrir slysni varamann í v hornið sem er skytta og hann spilaði í 5 mín (: Síðan klikkum við á 3 vítum. Þetta tvennt hefur örugglega kostað okkur stigið svo það var svekkjandi.
|
|
|
Post by blesi on May 2, 2009 3:09:27 GMT 1
Tja, svisslendingar eru með hærra TSI á heildina litið, þannig að ég tel jafntefli gegn þeim á útivelli bara vera nokkuð góð úrslit. Án þess svo að ég ætla að vera með nokkur leiðindi ... en er ekki Hlynur Thor að verða kominn fram úr Ragnari?
|
|
|
Post by noteboom on May 2, 2009 10:41:10 GMT 1
Það er stutt í það.
Frábært að vera með 2 góða LS. Og reyndar 3 því að Ólafur stendur þeim ekki langt að baki!
|
|
|
Post by noteboom on May 4, 2009 20:02:33 GMT 1
Töpuðum fyrir Evrópu á heimavelli með 20-24. Ekkert við því að segja, þeir eru með hörkulið og keyra á byrjunarliðinu allan tímann. Samt svekkjandi að við klikkum á 3 vítum!
'Eg er að reyna að þróa hlutina aðeins. Nota varamenn meira en í síðustu æfingarleikjum og mun væntanlega frekar auka það, lofa því þó ekki. Þurfum að fá sterkari línumann inn. Það er alveg hugsanlega að ég prófi eitthvað óvænt þar en við sjáum til.
Næst er það Andorra úti og algjör krafa um sigur þar.
|
|
|
Post by jonhelgi on May 8, 2009 21:20:00 GMT 1
Við unnum Andorra.
|
|
|
Post by noteboom on May 8, 2009 21:38:32 GMT 1
Já og þokkalega öruggur sigur.
Niðurstaðan úr þessum 4 leikjum eru 5 stig. Sem er í fínu lagi. Enn það er sem er mikilvægara er að við erum alveg við það að hækka um styrkleikaflokk. Fyrir leikinn í dag vorum í komnir í 4 flokk af 6 (treysti því að þeir miði við rank listann) og sigurinn í dag ætti að tryggja það betur. Sjáum það væntanlega á morgun.
|
|
|
Post by noteboom on May 10, 2009 4:50:13 GMT 1
Riðillinn er kominn. Erum komnir í 4 styrkleikaflokk en þetta er mjög erfiður riðill:
1 Finnland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 2 Danmörk 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 3 Austurríki 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 4 Ísland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 5 Pólland 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0 6 Slovakia 0 0-0-0 0-0 +0 0:0 0-0-0 0-0-0
|
|
|
Post by noteboom on May 17, 2009 16:13:23 GMT 1
Töpuðum fyrir dönum með 3 mörkum. Vítin eru okkur dýr, klikkuðum á 3!
Þetta er svakalegur riðill, pólverjar og finnar gerðu jafntefli og Austurríki vann Slóvaka með 5 en við mætum Austurríki einmitt næst. Munum spila 4-2 á þá eins og við gerðum gegn dönum. Eftir á séð hefði kannski verið betra að spila 6-0 gegn dönum. Tók skyttur þeirra út en þeir eru mjög sterkir.
|
|
|
Post by noteboom on May 19, 2009 19:54:46 GMT 1
Þetta er þungt, töpuðum fyrir Austurríki með 2 mörkum.
Eigum Slóvaka næst og þar eru okkar bestu möguleikar.
|
|
|
Post by noteboom on May 23, 2009 2:49:15 GMT 1
Unnum Slóvaka 30 - 26. Það léttir að vera kominn á blað en næst eigum við Pólverja. Þeir hljóta að vera svekktir, með flott lið en hefur gengið mjög illa.
1 Austurríki 3 3-0-0 91-83 +8 6:0 1-0-0 2-0-0 2 Finnland 3 2-1-0 73-67 +6 5:1 2-0-0 0-1-0 3 Danmörk 3 2-0-1 76-72 +4 4:2 1-0-0 1-0-1 4 Ísland 3 1-0-2 78-79 -1 2:4 1-0-1 0-0-1 5 Pólland 3 0-1-2 78-82 -4 1:5 0-1-1 0-0-1 6 Slovakia 3 0-0-3 78-91 -13 0:6 0-0-1 0-0-2
|
|
|
Post by jonhelgi on May 23, 2009 13:03:24 GMT 1
Það væri nú flott að vinna Pólverjana eins óraunhæft og það nú er.
|
|
|
Post by noteboom on May 23, 2009 13:12:52 GMT 1
Við gerum allt sem vioð getum! Spilum 42 og tökum skytturnar út.
|
|
|
Post by jonhelgi on May 24, 2009 14:24:29 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1243080772" source="/post/69702/thread"]Við gerum allt sem vioð getum! Spilum 42 og tökum skytturnar út.[/quote] Gangi þér vel.
|
|
|
Post by noteboom on May 25, 2009 20:20:51 GMT 1
Þetta var hörkuleikur. Átti satt best að segja von á enn erfiðari leik. Í raun vorum við ekki langt frá því að koma á óvart. Ein skyttan þeirra skoraði 12 mörk. Málið er að við ætluðum að taka báðar út, þeir hafa hrikalegar skyttur sem bera liðið ávallt uppi, en önnur þeirra sem hefur spilað var ekki í hópnum! Ekki spyrja mig af hverju! Svo það virkaði greinilega ekki að spila 42 vegna þessa.
Hins vegar fannst mér það hrós að þeir skyldu spila 51 því þeir mjög oft 42. Sýnir að breiddin er að aukast hjá okkur.
Við náðum ekki að nýta okkur að hækka um styrkleikaflokk í þessu móti, einn leikur eftir gegn finnum sem berjast um að komast í úrslit, en höfum haldið sjó þokkalega í rankkerfinu. Þurfum að freista þess að ná að hækka okkur um einn flokk í viðbót. Þetta kemur allt saman og það er gleðilegasta er sá hópur sem er á leiðinni. Vel unnið að málum hjá okkur. En okkur vantar samt tilfinnanlega markvörð með amk 50+ í einkunn!
|
|
|
Post by noteboom on May 29, 2009 21:00:41 GMT 1
Magnaður sigur á feiknasterku finnskuj liði í dag!!! Þetta þýðir að Austurríki kemst áfram á 2 mörkum! Verð að viðurkenna það að ég taldi möguleikana ekki mikla en sigurinn var mjög öruggur! 1 Danmörk 5 4-0-1 134-120 +14 8:2 2-0-0 2-0-1 2 Austurríki 5 3-1-1 142-139 +3 7:3 1-1-0 2-0-1 3 Finnland 5 2-2-1 124-123 +1 6:4 2-0-1 0-2-0 4 Pólland 5 2-1-2 130-127 +3 5:5 1-1-1 1-0-1 5 Ísland 5 2-0-3 128-126 +2 4:6 1-0-2 1-0-1 6 Slovakia 5 0-0-5 126-149 -23 0:10 0-0-2 0-0-3
|
|