|
Post by jonhelgi on Apr 5, 2009 0:08:26 GMT 1
Það er búið að uppfæra þetta núna.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 5, 2009 1:17:41 GMT 1
Takk fyrir það
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 7, 2009 20:06:18 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1238890661" source="/post/67837/thread"]Takk fyrir það [/quote] Ekkert að þakka. Ég sé núna að þú ert með meira en tvöfalt fleiri atkvæði heldur en næsti kandidat eða heil fimm atkvæði hvorki meira né minna! Voða er dræm þátttaka í kosningunum.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 12, 2009 13:18:50 GMT 1
Já, hún er dræm. Lýkur 16. Hefði viljað sjá meiri þátttöku. Þurfum einhvern veginn að rífa spjallið hér upp og fá fleiri á það.
|
|
|
Post by blesi on Apr 12, 2009 15:31:32 GMT 1
Að sjálfsögðu er ég búinn að kjósa þig noteboom, kemur ekkert annað til greina.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 12, 2009 17:40:51 GMT 1
Takk fyrir það.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 13, 2009 15:22:29 GMT 1
Kosningarnar eru orðnar spennandi. Það munar einu atkvæði á mér og næsta
|
|
|
Post by noteboom on Apr 16, 2009 18:47:51 GMT 1
Jæja, ég vann þetta eftir mjög jafna baráttu Þakka traustið! Læt heyra í mér þegar leikir liggja fyrir.
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 17, 2009 1:09:56 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1239904071" source="/post/68357/thread"]Jæja, ég vann þetta eftir mjög jafna baráttu Þakka traustið! Læt heyra í mér þegar leikir liggja fyrir.[/quote] Til hamingju með það ég er bara að velta því fyrir mér hvort aðalkeppinauturinn fékk svona mörg atkvæði bara út á nafnið?
|
|
|
Post by noteboom on Apr 20, 2009 23:33:14 GMT 1
Jæja, þá liggur fyrir leikjaplanið auk þess sem ég komst inn á síðuna í dag. Leikirnir sem liggja fyrir eru eftirfarandi (hugsanlegt reyndar að það sé spilað 23. Það er nefnilega komið það kerfi að lið geta að takmörkuðu leyti komið sér saman um æfingarleiki. Slóvenar vildu spila 2 leiki við okkur, heima og úti. Ég vildi ekki spila 2 leiki heldur samþykkti heimaleikinn og bauð rússum að koma í heimsókn. Hef ekki fengið svar frá þeim enda stutt síðan ég bauð þeim):
27/04/2009 - 16:30 - Mán F Ísland - Austurríki 01/05/2009 - 17:00 - Fös F Sviss - Ísland 04/05/2009 - 17:00 - Mán F Ísland - Evrópa 08/05/2009 - 17:30 - Fös F Andorra - Ísland
Til að byrja með mun ég nota sama grunn og í fyrra en ég mun leita að mönnum sem eru að standa sig vel sem og framtíðarmönnum. Svo einhverjar breytingar gætu orðið þegar líður á. Enda hef ég endurnýjað liðið jafnt og þétt eftir þessa miklu byltingu sem ég gerði, í að yngja upp liðið á sínum tíma. Aldurinn er þó fínn og ekkert stress með hann.
Við erum ekki heppnir með leikina, 3 mjög erfiðir leikir til að byrja með en Andorra eigum við þó að vinna.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 20, 2009 23:48:05 GMT 1
jonhelgi, varðandin þjálfunina. Annað sem okkur vantar mjög er staða línumanns.
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 21, 2009 21:41:26 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1240267685" source="/post/68519/thread"]jonhelgi, varðandin þjálfunina. Annað sem okkur vantar mjög er staða línumanns.[/quote]
Ég hef verið að þjálfa leikstjórnendur en það er lítið mál að skipta í línumenn því aðalskillið er það sama, skapandi. Ég á nokkra unga íslendinga sem gætu orðið ágætis línumenn. Fer þá að púlla línumenn í staðinn fyrir leikstjórnendur.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 22, 2009 0:26:04 GMT 1
Líst vel á það!
Svaka barátta framundan í deildinni. Hörkuleikir í 1 umf.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 29, 2009 0:02:13 GMT 1
Ekki skil ég af hverju mánudagsleikurinn hef enn ekki farið fram! Munum spila 42 þar en svo eigum við Sviss á föstudag! Get ekki breytt liðinu fyrir þann leik fyrr en við erum búnir með leikinn gegn Austurríki!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 29, 2009 17:19:45 GMT 1
Jæja, það kom þetta loksins!
Unnum góðan 31-27 heimasigur á góðu liði Austurríkis.
Næst eigum við Sviss á útivelli. Þeirra besti maður meiddist í tapleik gegn Slóvenum (þeir töpuðu með einu) svo við spilum 6-0 fyrir vikið.
|
|