jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Apr 14, 2008 13:24:11 GMT 1
Þau eru ekki að tala um leikinn á moti Íslandi. Við eigum að passa sértaklega á Carl Pastor, hann er magnaður. Markmaðurinn á beknum er 82 í markvarsla Ég gat ekki að njósna meira, það er ekki mikið upplysingar um leikinn. P.S. I'm feel like a traitor
|
|
|
Post by noteboom on Apr 14, 2008 15:58:36 GMT 1
Takk fyrir þetta. Við tökum Carl Pastor og David Navarro Arenas úr umferð í dag. Smáleiðrétting, þeir urðu í 2 sæti í fyrstu HM en unnu síðast.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 14, 2008 20:03:27 GMT 1
Tap í dag eins og reikna mátti með, þó að maður sé aldrei sáttur við tap.
Ýmislegt jákvætt þó, Pastor var tekinn úr umf og skoraði aðeins 1 mark fyrir utan vítin. Hinn hornamaðurinn skoraði 2 svo það gekk upp. 'A sama tíma skorar Arnar 5 þó hann sé tekinn úr umf en við getum gefið okkur að slíkt verði alltaf gert.
Annað jákvætt er að allir byrjunarmenn okkar skoruðu og það er jákvætt. Við byrjuðum mjög illa en drógum vel á þá og þegar lítið var eftir munaði aðeins tveim mörkum. Við brennum allt of mikið af í vítum og það er dýrt, sérstaklega gegn svona liðum.
Næst er það Bosnía sem tapaði með aðeins eins marks mun á útivell gegn sterkum pólverjum svo það verður erfitt en ég vil vinna þann leik! Fyrir æfingarleikina hefði ég verið sáttur við 2 sigra en nú vil ég þrjá. Eins og planað var munum við spila þann leik eins og mótaleik sé um að ræða og verður gaman að sjá hvernig prufukeyrsla kemur út!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 15, 2008 12:18:50 GMT 1
Við eigum Bosníu næst og ég hef þegar ákveðið mig, svo framarlega sem að allir séu heilir!
Eins og ég hef margsagt spila ég þennan leik eins og þetta væri mótaleikur. Nauðsynlegt að ná einum slíkum til að sjá hverning staðan er. Við tökum leikstjórnanda þeirra úr umferð. Hornamenn, línumaður, leikstjórnandi og markvörður eru þeir sömu og áður. Arnar verður auðvitað en svo var það höfuðverkurinn með hina skyttustöðuna. Málið snerist um Sebastian Thorvardarsson sem er mjög skemmtileg skytta og Erlend Magnusson sem er stórskemmtilegur leikmaður. Munurinn er lítill en aðallega sá að Sebastian spilar báða leikina í vikunni en Erlendur bara æfingarleikinn. Þetta ræður úrslitum því að þeir leikmenn sem við notum þurfa á þjálfun að halda til framtíðar svo að Sebastian byrjar. Thor, útaf vítamálum og Erlendur eru varamenn. Thor spilar einn tíunda en Erlendur einn fjórða. Hlynur Thor hvílir Ragnar í fimm hundruðustu í leiknum, ef svo ótrúlega vill til að þjálfari Bosníumann sé að lesa þetta að þá vil ég tala í bókstöfum (!) og síðan fá markvörður, hornamenn og línu hvíld í einn tíunda.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 16, 2008 0:13:31 GMT 1
Það er búið að bæta 2 æfingarleikjum við! Gegn Noregi heima og Dönum úti. 'Eg ætla samt að halda mig við það að spila Bosníu leikinn sem mótaleik. Gott að spila einn svoleiðis og sjá hvað betur má fara. 'A eftir að hugsa það hvernig ég nýti hina leikina tvö.
Noregur (rank 2489) tapaði fyrsta æfingarleiknum en vann hina tvö, notuðu 4-2 í sigurleikjunum. Þeir eru með fínt lið en við eigum góða möguleika gegn þeim. Danirnir (rank 2867) hafa unnið alla þrjá og eru með feiknalega gott lið. Verða virkilega erfiðir.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 16, 2008 12:22:12 GMT 1
Ég sendi inn fyrirspurn um hvenær næsta HM byrjaði. Vonandi fæ ég fljótlega svar en ég f*gna þessum æfingarleikjum.
'Eg ætla að nýta þessa tvö til að vinna í því að finna sem best leikskipulag fyrir mótið. Hins vegar mun ég ekki tilkynna lið og taktík, fyrir þessa leiki, hérna eins og ég hef gert því að einhverjir njósnarar gætu verið hér. Mun hins vegar fjalla um þá að leik loknum.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Apr 18, 2008 11:48:01 GMT 1
Frábær leikur!! 20-22 Úti. Ragnar var magnaður, 11 mörk.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 18, 2008 12:21:55 GMT 1
Já, þetta var mjög lærdómsríkur leikur. 'Eg notaði hann sem prufu fyrir HM, eins og þetta væri mikilvægur leikur í móti og það skýrir sérstakan leiktíma miðað við æfingarleik. Það er búið að kvarta yfir því við mig að utan en ég verð að nýta æfingarleikina í margvíslegum tilgangi og þetta er einn þeirra.
Ragnar ótrúlegur, frábær leikur. Arnar spilaði vel en hann verður alltaf tekinn úr umferð því mikilvægt að vera með rétta menn með honum.
En mér leist ekkert á byrjunina! 6-0 er eitthvað sem maður vill ekki sjá eftir 5 mínútur! Næst eru það norsarar sem spiluðu við mjög sterkt lið pólverja og gerðu 26-26 jafntefli á heimavelli.
Norðmennirnir skipta nánast ekkert inn á allan leikinn og byggja liðið upp á þremur leikmönnum. En þeir leikmenn eru feiknalega öflugir.
Því miður kveikti ég of seint á að skoða "ranklista" landsliða, þið sjáið skemmtilega tölfræði ef að þið ýtið á ranktakkan hjá ykkur. Þess vegna er ég ekki alveg klár á því hvar við stóðum í upphafi en minnir að við höfum verið um 2150 stig. Blesi getur kannski leiðrétt mig ef að það er rangt. Við erum í dag í 26 sæti af 36 liðum. Ef mín kenning er rétt þýðir það að við spilum í 5 styrkleikaflokki í stað 4 síðast. Hins vegar er athyglisvert að skoða árangur okkar gegn hinum liðunum hvað þetta varðar, gefur viðmið. Birti hér úrslit í leikjum okkar og í endann er núverandi staða andstæðinga okkar á ranklistanum sem og rankstig þeirra:
Ísland 28-27 Holland Holland: 2294 28 Svíþjóð 21-23 Ísland Svíþjóð : 2737 14 Ísland 27-31 Spánn Spánn: 3287 1 Bosnia-Herzegowina 20-22 Ísland Bosnía: 2221 30 Ísland - Noregur Noregur: 2515 19 Danmörk - Ísland Danmörk: 2867 10
Eftir síðasta leikinn hefst svo HM.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 21, 2008 18:08:22 GMT 1
Tap fyrir Noregi í morgun og ég er ekki alveg sáttur við það! 'Eg er að reyna að byggja upp og ná árangri á sama tíma. Sumir segja að það sé ekki hægt en ég vil meina að slíkt sé oft hægt, bara erfiðara! Svo að það sem ég er að segja er að ég vildi vinna þennan leik! Eftir á finnst mér ég hafa gert ákveðinn mistök og þau eru að pirra mig. Ekki það að maður gerir alltaf einhver mistök, þarf bara að læra af þeim og það ætla ég mér að gera! En vandinn er sá að maður var að reyna að klóra sig upp í 4 styrkleikaflokk og með þessu tapi er það nánast úr sögunni. Þurfum sigur gegn dönum, sem við reynum auðvitað og margt annað þarf að ganga upp. En möguleikar okkar eru aðeins 15-20% gegn dönum svo að það verður erfitt. 'Eg ætla mér að nýta tækifærið og skoða ákveðinn möguleika sem ég hef velt fyrir mér. Þessi möguleiki er mikil áhætta en við þurfum hvort eð er að taka áhættu, og það mun ég gera bæði í vörn og sókn, og ég vil skoða þennan hlut sem ég er með í huga. Það gæti verið sterkt að nýta þennan möguleika í HM ef á þarf að halda.
Norðmenn hafa gott lið og spila alla leiki upp á sigur sem sjá má á því að þeir skipta mjög lítið inn á. En ég tel að við eigum fína möguleika gegn þessu liði svo að þess vegna er ég ósáttur. En við þurfum að horfa fram á veginn og núna er það bara næsta leikur.
'Eg prófaði ákveðna skiptingu milli manna og er að sjá hvað hentar okkur best. Það er mikill munur á markvörðunum og væntanlega mun Björn spila fullan leiktíma. Okkur vantar lið sem þjálfar markverði, línumannsstaðan er komin í farveg og markvörðurinn því það eina sem vantar upp á framtíðina að gera. Það er eitt sem starf mitt fyrir landsliðið hefur sýnt mér og það er mikilvægi multiskill leikmanna. TSI gefur bara viðmið en segir ekki alla söguna. Sem dæmi er Erlendur, skyttan mín hjá mínu liði, með lága stuðla miðað við skyttu en hann er rosalega fjölhæfur og það gerir það að verkum að hann er að skora mikið. 'Eg hef komist að sömu niðurstöðu með landsliðið. Skyttur þurfa hraða og sköpun einnig, amk annað hvort. Það er munurinn á td Sebastian og sumum hinna skyttanna varðandi skorun.
Vítanýtingin er hræðileg. Við töpum 28-30 og brennum af 4 vítum!!! Það er einn vandi landsliðsins að okkur vantar betri vítaskyttur. 'Eg er tilbúinn, ef ég finn, að taka inn í landsliðið vítaskyttu með amk 20 stig sem hefði það eina hlutverk að taka víti. Því þau telja.
En alla vegana, danir eru næstir. Þeir voru mjög ósáttir við þjálfarann sinn í síðustu keppni eins og sjá má á skoðanakönnuninni á þeirra forumi! Held að þeir séu aðeins og harðir þar en engu að síður er þetta lið sem ætti að fara mjög langt í næstu keppni.
|
|
|
Post by blesi on Apr 21, 2008 18:14:40 GMT 1
Úps! Mér tókst að klára alla 3 póstana mína fyrir vikuna í morgun, þannig að ég svara þér bara hér Noteboom. Það er náttúrulega alveg ljóst að vítaköstin sem fara forgörðum eru okkur dýrkeypt, og ráða auðvitað alveg úrslitum á móti Norðmönnum, þar sem þeir nýta öll sín en við klúðrum 4 og töpum með tveggja marka mun. Einföld stærðfræði segir okkur að við hefðum unnið ef 3 af þessum 4 hefðu farið inn.
Línumennirnir fara tveir, eins og ég sagði áður, núna í vikunni og verða það þá þessi 22 ára og svo annar hinna yngri. Á enn eftir að ákveða hvor það verður. Ég reyni svo að spila hinum eitthvað svo hann fái allavega einhverja þjálfun.
Það er svo mikil synd að það skuli enginn vera að þjálfa markverði, en ég er einmitt með einn tvítugan sem er með 15 í markvörslu og 15 í fótavinnu. Þann væri alveg hægt að þjálfa eitthvað, auk þess sem maður hlýtur að pull-a almennilegt efni á endanum. Hann mun þó væntanlega fá að spila meira í æfingaleikjum á næstunni, svona svo að hann fái allavega einhverja þjálfun.
Leikurinn í dag var annars að mestu leyti flottur og flott að sjá að margir máttarstólpar liðsins eru greinilega að fá hellings þjálfun, en ég er einmitt búinn að vera að leyfa hinni ungu skyttunni minni að spila slatta, þannig að hann gæti alveg orðið boðlegur í liðið á endanum.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 21, 2008 18:44:51 GMT 1
Já, það er margt jákvætt í þessu. Við erum með ungt en bráðefnilegt lið. Þurfum í einhvern tíma að stóla á fáa aðila meðan að við erum að fá upp breidd en það er bjart framundan. Menn eru, eins og þú segir að fá þjálfun og það er í raun lykilatriði fyrir mér vegna þeirrar stefnu minnar að reyna að gera eitthvað í þar næstu keppni.
En í heildina séð er þetta jákvætt og við erum á réttri leið. Vil nota tækifærið og benda á mikilvægt starf Blesa við að byggja grunninn til þess að þetta sé raunhæft. Menn gleyma allt of fljótt mikilvægu starfi þeirra sem undirbjuggu hlutina. Reyndar meira en undirbjuggu því að árangur Blesa var góður.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Apr 21, 2008 21:48:29 GMT 1
Talandi um þjálfun þá á ég 1 18 ára gutta sem er efni í fínan hornamann og er til búinn að selja hann ef einhver ykkar vill þjálfann. Gæti reyndar sjálfsagt orðið ágætis línumaður líka ef því er að skipta.
|
|
|
Post by blesi on Apr 22, 2008 16:23:29 GMT 1
Þakka hlý orð í minn garð og hika ekki við það að endurgjalda hrósið, en þú ert klárlega á réttri leið með liðið. Línumennirnir mínir eru nú báðir komnir á sölu, en þetta hefur dregist aðeins þar sem við höfum átt erfitt með að finna hentugan tíma til að skella þeim á sölu. Ég vona þó að þetta gangi núna og þú mættir endilega hnippa aðeins í stjóra KRaular og láta hann vita að hann ætti að geta gengið frá kaupunum á fimmtudagsmorguninn. Ef þetta klúðrast allt saman á ég þó allavega einn frambærilegan í viðbót. Þessi gutti sem fattila er með virðist svo vera alveg heljarinnar efni.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 22, 2008 17:33:21 GMT 1
Takk fyrir það.
'Eg skal láta KRaula vita.
Fatilla, ég hef pláss fyrir einn hornamann en bara í varaliðið. Ef þú vilt get ég tekið inn, láttu mig bara vita. Svolítið svekktur hve Markúsi gengur illa að ná upp hraða, frábær hins vegar í vinnu án bolta, hitt hlýtur að koma.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Apr 22, 2008 21:19:05 GMT 1
Mig vantar svosem ekkert að losna við hann, það er bara synd að hann fái ekki fulla þjálfun sem annaðhvort línu- eða hornamaður. Ef þið viljið get ég sett statsin á honum hérna inn svo menn geti metið það hvort þeir hafi áhuga. hann færi bara á sölu á lágu verði þannig að markmiðið er ekki að græða á honum.
|
|