|
Post by blesi on Jul 26, 2007 0:24:29 GMT 1
Sæl.
Tapleikir á móti Slóveníu og Svíþjóð komu lítið á óvart þar sem þar eru virkilega sterk lið á ferð. Jafnteflið á móti Spáni kom hins vegar gríðarlega mikið á óvart, enda þeir með eitt af albestu liðunum, topp 3 að mínu mati. Því er ég mjög ánægður með þau úrslit. Næsti leikur á móti Portúgal verður strembinn því þeir eru með þrælfínt lið auk þess sem sá leikur er á útivelli. Leikirnir eftir það eru leikir sem ég vonast til að sigra alla, enda eigum við alveg að geta það. Hinn þrælöflugi Sigurður Magnússon er líka á leiðinni til baka úr meiðslum og munar heldur betur um hann.
Góðar fréttir úr mínum herbúðum þar sem ég pullaði gríðarlega efnilegan leikstjórnanda sem þarf helst æfingu í fótavinnu og sendingum, sem auðvitað er frábært þar sem ég þjálfa fótavinnu og sendingar. Ég býst því við því að hann fari að banka á dyrnar hjá landsliðinu áður en á mjög löngu líður. Lifið heil.
|
|
|
Post by jonhelgi on Nov 15, 2007 20:44:08 GMT 1
Fyrst það er byrjað að kjósa landsliðsþjálfara langar mig að vita hverjum langar mest til að halda í eða fá embættið.
|
|
|
Post by noteboom on Nov 16, 2007 12:36:54 GMT 1
Það er engin spurning að ég hef hug á þessu embætti. Hins vegar mun ég ekki fara gegn núverandi þjálfara og þar liggja tvær aðstæður að baki. 'I fyrsta lagi hefur hann staðið sig vel og í öðru lagi er ég talsmaður þess að menn fái tvö tímabil hið minnsta því að reynsla skiptir máli og fyrra tímabilið fer oftast í það að öðlast reynslu og ná þeim samböndum sem skipta máli.
Svo að ef Blesi ákveður að halda áfram styð ég hann en ef hann gerir það ekki að þá býð ég mig fram.
|
|
|
Post by jonhelgi on Nov 16, 2007 19:43:56 GMT 1
Þá þurfum við bara að fá á hreint frá honum hvort hann vill halda áfram.
|
|
|
Post by blesi on Nov 17, 2007 13:14:32 GMT 1
Sælir piltar. Eftir svo til enga umhugsun hef ég ákveðið að ég hef mikinn hug á að halda áfram með landsliðið. Eins og noteboom nefnir þá tekur það nokkurn tíma í að öðlast reynslu og eins hef ég verið að kynnast hópnum. Eins og hann er uppbyggður núna er ljóst að það verður að eiga sér stað nokkur endurnýjun og er ég þessa dagana að meta leikmennina og ákveða hverjir koma til með að leika hlutverk hjá landsliðinu. Noteboom sé ég svo sem afar líklegan eftirmann minn.
|
|
|
Post by noteboom on Nov 17, 2007 19:02:50 GMT 1
Líst vel á það og hef þegar kosið þig.
Mæli svo með Skarphéðni Guðmundssyni ef þú ert að endurskipuleggja (sem ég held að sé gott mál, margir mjög gamlir í liðinu og spurning að byggja upp reynslu), hann er feiknasterkur í horninu og mun fá þjálfun í amk töluverðan tíma=þetta og næsta tímabil hið minnsta.
|
|
|
Post by noteboom on Nov 17, 2007 20:17:15 GMT 1
Þar sem það mátti misskilja það þegar ég talaði um að liðið væri gamalt, vil ég taka það skýrt fram að þetta var ekki meint sem gagnrýni á liðsval. Það er eðlilegt að byrja með sterkasta hópinn. 'I framhaldinu má hins vegar velta fyrir sér hverjir muni standa sig best sem lið og upp á framtíð að gera í næstu keppni.
|
|
|
Post by jonhelgi on Nov 17, 2007 21:52:38 GMT 1
[at]blesi: fyrst þú ert vilt halda áfram þá mun ég kjósa þig (eftir nokkrar sekúndur)!
|
|
|
Post by blesi on Nov 18, 2007 4:37:42 GMT 1
Þakka kærlega stuðninginn félagar og mun ég gera mitt ýtrasta til að bregðast ekki sýndu trausti. Skarphéðinn Guðmundsson er svo sannarlega inni í myndinni og eru allar líkur á því að hann verði kallaður inn í hópinn bráðlega. Já og ég tók þessu alls ekki sem gagnrýni, skil alveg hvað þú ert að fara. Nú er orðið talsvert mikið mun auðveldara að fara í gegnum alla íslenska leikmenn þannig að ég mun fara afar gaumgæfilega í gegnum þetta.
En fyrst að við ræðum um aldur leikmanna...hvert er ykkar álit? Menn sem eru um 30 ára aldurinn eru nú ekkert að fara að dala strax, eiga þeir að fá að tolla, í bland við yngri leikmenn?
|
|
|
Post by jonhelgi on Nov 18, 2007 15:39:39 GMT 1
Þakka kærlega stuðninginn félagar og mun ég gera mitt ýtrasta til að bregðast ekki sýndu trausti. Skarphéðinn Guðmundsson er svo sannarlega inni í myndinni og eru allar líkur á því að hann verði kallaður inn í hópinn bráðlega. Já og ég tók þessu alls ekki sem gagnrýni, skil alveg hvað þú ert að fara. Nú er orðið talsvert mikið mun auðveldara að fara í gegnum alla íslenska leikmenn þannig að ég mun fara afar gaumgæfilega í gegnum þetta. En fyrst að við ræðum um aldur leikmanna...hvert er ykkar álit? Menn sem eru um 30 ára aldurinn eru nú ekkert að fara að dala strax, eiga þeir að fá að tolla, í bland við yngri leikmenn? Mér finnst þeir megi alveg fá að vera í liðinu ef þeir eru bestu leikmennirnir. Eru menn nokkuð farnir að tapa hæfileikum fyrr 34-36 ára í þessum leik?
|
|
|
Post by noteboom on Nov 18, 2007 18:53:17 GMT 1
Það er ekkert af því að hafa eldri leikmenn að hluta eða öllu leyti. Sýst allt um hæfileika og stefnu. Menn eldast afar vel í þessum leik og þannig er það í nútíma handbolta.
Það sem ég átti við var að 34 ára leikmennirnir verða væntanlega 36 í næsta stórmóti og þá er spurning hvernig líkur séu á getu þeirra þar. Þær geta verið góðar en gætu einnig dalað. Sjálfur er ég með toppleikmann 34 eða 35 ára sem hefði getað haldið lengi áfram en ég ákvað að fá framtíðarmann í stað hans. Það hafði auðvitað strax áhrif á hæfileika hans. 'A saman tíma fékk ég góðan markmann, 35 ára en sá hefur ekki staðið undir væntingum og það hefur væntanlega eitthvað með aldur að gera. Annað mál því tengt og hrósa ég forritum leiksins ef það er rétt, að Skarphéðinn skoraði minna þegar sá gamli var megnið af leiktímanum. Ástæðan held ég er sú að ég gleymdi að taka sendingahlutann inn í málið=hraðaupphlaup! Sá markvörðu sem var fyrir er með flottar sendingar og það virðist hafa áhrif því eftir að hann fór í markið aftur hefur Skarphéðinn aftur komið upp í skorun.
|
|
|
Post by blesi on Nov 19, 2007 2:03:27 GMT 1
Akkúrat, elstu leikmennirnir eru flestir enn í þjálfun og því ekki mikið í því að tapa hæfileikum. Það eru þó einir 5-6 leikmenn sem ég þarf að skoða vel og munu pottþétt einhverjir þeirra detta út. Gott dæmi er Dagur Kjartansson sem er að fá fulla þjálfun og er reynslumesti maður liðsins. Hann er hins vegar orðinn 35 ára og Halvor Örn er eiginlega búinn að ná honum í hæfileikum. Því sé ég Halvor sem aðalleikstjórnandann næstu árin (þrátt fyrir undarlegt nafnið) auk þess sem Ragnar Alexanders fær pottþétt nokkuð að tækifærum.
Svo einmitt kannast ég alveg við dæmið þitt af 34 eða 35 ára manninum þar sem hið sama gerðist hjá mér. Gerard Olalas var alltaf aðalstjarnan mín og átti því alveg leikstjórnandastöðuna, þar til Hlynur Thor kom upp og eignaði sér stöðuna. Auðvitað spilar þar líka inn í að ég sé Hlyn sem lykilmann í landsliðinu í framtíðinni og vil því að hann fái fulla þjálfun.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 2, 2007 18:06:01 GMT 1
Til hamingju með endurkjörið blesi.
|
|
|
Post by blesi on Dec 3, 2007 2:07:04 GMT 1
Þakka þér kærlega fyrir það og þakkir til þeirra sem kusu mig. Ég mun að sjálfsögðu gera allt sem í mínu valdi til að bæta landsliðið og er enn að fara í gegnum hópinn. Gleðifréttir eru þær að við virðumst vera í ágætis málum hvað varðar hornamenn núna og svo er fullt af tiltölulega ungum skyttum í hópnum (24 og 25 ára) sem ég er að fylgjast með þróuninni hjá. Ég mun reyna að láta ykkur vita svolítið af þróuninni á hópnum þegar meira fer að skýrast. Eins og er bíð ég líka eftir því að sjá leikjadagskrána en það hljóta að fara að koma inn æfingaleikir fljótlega. Kær kveðja.
|
|
|
Post by noteboom on Dec 3, 2007 11:52:08 GMT 1
Til hamingju með þetta Blesi.
|
|