|
Post by noteboom on Mar 30, 2008 19:35:49 GMT 1
Sælir.
Ég vil þakka ykkur fyrir að hafa kosið mig sem landsliðsþjálfara og fyrir þann stuðning sem þið hafið sýnt. Ég mun gera mitt besta og reyna að byggja ofan á frábært starf Blesa.
'Eg hef tekið þá ákvörðun að reyna að byggja upp lið fyrir þar næstu keppni þó ég reyni auðvitað að standa mig í næstu keppni einnig. Þar að segja, ég mun byggja upp nýtt ungt lið, nota þá sem Blesi var kominn með inn af yngri þó að ég fari auðvitað yfir málin því að einhverjar áherslubreytingar verða með nýjum mönnum. 'Eg miða við að nota eingöngu menn undir 28 ára aldri þó að allt gæti orðið um undantekningar.
Meira síðar!
|
|
|
Post by blesi on Mar 31, 2008 2:18:23 GMT 1
Til hamingju með kosninguna og þakka þér aftur fyrir hlý orð í minn garð. Hópurinn eins og hann er orðinn í dag líst mér nokkuð vel á, eftir hreinsunina sem átti sér stað á meðan kosningar stóðu yfir, en þá duttu sjálfkrafa nokkrir leikmenn úr hópnum. Þeir leikmenn voru flestir komnir á aldur og lítið búnir að spila fyrir liðið. Skarphéðinn er þarna auðvitað algjör undantekning og efast ég ekki um þú kippir honum strax aftur inn í hópinn. Stefnuna þína líst mér svo afskaplega vel á og tel liðið í afar góðum höndum. Að lokum má svo kannski benda þér á það að „hin“ skyttan mín fer að banka á dyrnar, Steinar Jónsson, en hann er að fá fulla þjálfun.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 31, 2008 12:27:19 GMT 1
Takk fyrir þetta.
'A örugglega eftir að fá ráð hjá þér.
'A einum stað er talað um valmöguleikar eftir, undir stjóra takkanum, hvað þýðir það? 'Eg hef verið að hreinsa út í dag, held einum 31 eftir til að byrja með meðan ég er að skoða hann betur, en það segir að ég hafi 5 valmöguleika eftir. Er það hvað ég má breyta um í hópnum á dag, viku?
Manstu hvenær leikjaáætlunin kemur?
Gott að vita af öllum leikmönnum, hef ávallt lista yfir framtíðarleikmenn þar sem ég er landsliðsþjálfara dana í einum leik og það gefst vel.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Mar 31, 2008 22:50:22 GMT 1
Til hamingju og ég vona allt gengi mjög vel hjá þér.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 31, 2008 23:16:07 GMT 1
Takk fyrir það. Sendi stöðluð bréf út eins og ég hafði hámrk til en vil vera í sem bestu sambandi við ykkur. Virðist ágæt dreifing á þjálfun en okkur virðist vanta línumenn og þess hélt ég einum 31 árs inni.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 1, 2008 22:47:26 GMT 1
Sælir.
Ég ætla að koma með ítarlegt bréf fyrir helgi en vil vara menn við ef að ég svara þeim ekki! Málið er að ég vissi það ekki að ég gæti ekki sent nema 25 bréf á viku! Sá skammtur og félgasskammturinn líka er löngu búinn svo ég get ekki svara nema í næstu viku þeim mailum sem hafa komið!
I just want to let people know that I didn´t know that I can only send 25 mails in week. I did it the first day! So sorry that I can´t answear yours mail at the moment. I do it as soon as I can.
'Eg er búinn að vinna mikið í sambandi við liðið. Kerfið til að finna leikmenn er gott en því miður get ég ekki útilokað ákveðinn aldur. Svo ég hef skoðað og leitað með þeim aðferðum og tíma sem ég hef til umráða. Ma hef ég skoðað sölulista, markahæstu menn í 1 deild í öllum löndum (þarf að skoða aðrar deildir líka en ekki getað það enn), skoðað leikmannalista marga liða og nýjustu sölur þeirra.
Það er alltaf svolítið erfitt að setja eigin leikmenn inn en eins og er virðist ég hafa 3 af fjórum bestu hornamönnunum undir 28 ára. Leita logandi ljósi af öðrum því að mér finnst þetta hátt hlutfall en mun heldur ekki "láta mína menn" gjalda þess að vera hjá mér. 'I mjög grófum dráttum virðist LS staðan vera í fínu lagi en LM þarf að bæta mikið. Erum með tvö ágæta markverði en ég vil hafa amk 3 í hóp. Sem minnir mig á láta ykkur vita af því að við gætum verið fáliðaðir í byrjun vegna kvóta á breytingum á dag í hópnum. Skyttumál er fín, eigum afburðarskyttu í skytta Blesa og aðra frambærilega.
Meira síðar!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 1, 2008 23:04:16 GMT 1
Var núna að kveikja á flottu leitartæki!
|
|
|
Post by blesi on Apr 2, 2008 0:44:29 GMT 1
Sæll. Flott að sjá að þú ert búinn að taka Hlyn Eysteinsson inn, en eigandi hans var einmitt búinn að vera duglegur við að færa mér fréttir af honum og er að þjálfa hann nokkuð grimmt. Svo auðvitað spillir ekki fyrir að hann kom upp í gegnum „unglingastarfið“ hjá mér. Þú ert nú, að því er mér heyrist, búinn að komast að þú hvað valmöguleikarnir þýða. Varðandi leikjaáætlun þá hefur allt slíkt verið rosalega misjafnt og á reiki. Ég hef samt ekki trú á öðru en að það fari að koma inn einhverjir vináttuleikir. Ég kannast svo alveg við það sem þú segir varðandi eigin leikmenn, enda hikaði ég á sínum tíma svolítið með það að setja Hlyn Thor í liðið af því hann var leikmaður minn...og svolítið ungur og óreyndur þá. En það er alveg rétt hjá þér að þú ert hreinlega með bestu hornamennina, ef frá er talinn Erlendur, leikmaður Bart bk, þannig að þú ættir ekki að hika við það að henda þínum mönnum í hópinn. Fyrst við erum að tala um það verð ég að fá að lýsa yfir ánægju minni með það að Markus Gustafsson sé að fá að spila eins mikið og raun ber vitni, enda ætti hann að vera framtíðarmaður í landsliðinu. Varðandi stöðurnar þá erum við í nokkuð góðum málið með markvörð, þó að Björn fái litla þjálfun í sína stöðu. Svo sýnist mér þú vera að covera hornin ágætlega. Skyttum eigum við nokkuð vel af eins og þú sagðir. Ég get svo lofað því að Hlynur Thor mun áfram fá duglega þjálfun í leikstjórnandanum, en ég rotate-a nokkuð á milli sendinga, fótavinnu og skapandi, með því gefandi bæði skyttum og leikstjórnanda gagnlega þjálfun. Það er svo rétt hjá þér að línumannastaðan er vandræðastaða hjá okkur og sennilega nauðsynlegt að slaka á aldurskröfum þar. Eins eigum við, eftir því sem ég best veit, lítið af mönnum sem geta tekið víti, Thor skástur þar sennilega. Jæja, ætli það sé ekki best að ég fari að slaka á í skrifunum í þetta skiptið, úff, stundum get ég bara ekki hætt þegar ég er byrjaður
|
|
|
Post by noteboom on Apr 2, 2008 11:40:10 GMT 1
Um að gera að skrifa vel og mikið, það gerir þetta bara skemmtilegra. Og um hvað sem er, ekkert síður deildina.
'Eg á eftir að setja mig í samband við fullt af þjálfurum en er í þessum vanda með fjölda maila,, óþægilegt að geta ekki skrifað ótakmarkað. Svo það er gott að vita að þjálfari Hlyns sé virkur.
Vissulega rétt að við neyðumst til að slaka á kröfum með aldurinn í línunni. Ég byrjaði að senda menn heim, enda vanur því að geta breytt að vild og tekið menn strax inn aftur en það er ekki hægt hér því að þeir gefa ekki kost á sér strax á eftir, manstu hvað það er langur tími?
'Eg á eftir að taka inn Steinar frá Blesum og Ólaf frá Akranesi en þar sem ég þarf að byrja á því að dekka horna- og línumannskröfur mun ég byrja á því enda á ég bara 7 möguleika eins og er.
Staðan er sú að við erum með heimsklassaleikmann í Arnari Esbjörnssyni. Hann og hinn frábæri leikstjórnandi Ragnar Alexandersson munu mynda kjarnann í liðinu. Síðan eigum við nokkur efni og ef vel verður haldið á spöðunum náum við vonandi nokkrum heimklassaleikmönnum í framtíðinni, eftir kannski 3-4 tímabil með samstilltu átaki. Skarkhéðinn, hornamaðurinn minn mun verða í hópi 15 bestu hornamanna heims eftir 3-4 tímabil og Markús á eftir að verða í hópi 3-4 í sömu stöðu eftir 5-6. Háleitt markmið en ég er nokkuð viss um það. Sigurjón, 3 hornamaður minn verður að dekka þá tvö og Erlend hornamann Bart af en Erlendur er virkilega góður. Svo hornin verða í fínu lagi og virkilega góð í framtíðinni. Leikstjórnandi hlutverkið er í góðum gír núna og með framtíðarmenn þar í góðri þjálfun hjá Blesum og Akranesi erum við í góðum málum. 'Eg er hrifinn af þjálfunarprógrammi þínu, blesi, því að eins og jonhelgi veit er ég hrifinn af fjölhæfum leikmönnum.
Við þyrftum að fá fleiri lið í markmannsþjálfun til þess að við eigum amk 3-4 sterka markverði. Ekki síst þar sem meiðsli eru farinn að leika stærra hlutverk í þessum leik. Mæli eindregið með því að menn komi meiðslameðhöndluninni upp í 250 sem allra fyrst. Markús lenti einmitt í 3 vikna meiðslum sem töfðu verulega fyrir honum. Varðandi línumann að þá tók ég erfiða ókvörðun. Fékk einn vin minn í þessum leik, sem hefur verið mjög óaktívur, til að vera með farm lið fyrir línumenn. 'Eg hef ávallt verið virkilega á móti farmliðum og því hef ég svolítinn móral yfir þessu en nauðsyn brýtur lög og þar sem við erum afar fáir og menn vinna ekki leiki á einum línumanni ákvað ég að gera þetta. En það tekur auðvitað mikinn tíma, fyrst þarf að púlla góðum og svo að þjálfa. Það er svo rétt hjá þér að okkur vantar betri vítaskyttur, Thor er sá eini sem getur skotið á markið og er sumsum enginn snillingur í því.
Varðandi leikkerfi að þá á ég von á því að öllu jöfnu að spila 6-0 eða 5-1 (sem virkar reyndar ekki sem hefðbundin útgáfa af einhverju 5-1 kerfi, það er 5-1, 5+1, +hægri/vinstri, indíani, heldur þýðir þetta að menn taka einhverja stöðu út). 4-2 verður í spes leikjum þó ég noti það ekki mikið. 4-2 virkar vel í deild en landslið eiga að vera jafnari og þar hef ég minni trú á því því að þeir leikmenn sem eru ekki teknir úr umferð bæta sig um 5%, auk þeirrar bætingar sem þeir fá í 5-1. Það þýðir það að jafnt lið ætti að græða vel á því.
En enn og aftur vil ég vara við því að liðið í fyrsta leiknum gæti verið skrautlegt því að ég hef of fáa leikmenn í ákveðnar stöður vegna meiðsla sem og að ég varaði mig ekki á því að ég hefði bara ákveðinn fjölda á dag til að breyta!
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Apr 2, 2008 14:19:14 GMT 1
uff, Það var erfitt fyrir mig að lesa allt þetta, en ég helt að ég hef skilið alveg allt. Ef þig vantar hjálp með eitthvað láta mig vita, til dæmis að leita leikmenn o.fl. Með kveðju
|
|
|
Post by blesi on Apr 3, 2008 22:44:21 GMT 1
Jæja. Þá lítur allt út fyrir að fyrsti leikurinn hjá nýjum þjálfara verði á mánudaginn næsta. Liðið líst mér orðið afar vel á, þó að það sé auðvitað ekki fullmannað enn...og eitthvað eigi væntanlega eftir að skoða skytturnar í hópnum, sem eru þónokkrar á svipuðum aldri og af svipuðum styrkleika.
Varðandi markvarðarstöðuna þá langaði mig einmitt alltaf rosalega að þjálfa markvörð samhliða skyttuþjálfuninni, en fann engan hentugan í það...allavega engan íslending. Svo kom Hlynur Thor upp úr unglingaliðinu og þar með fuku þau plön mín út um gluggann. Talandi um unglingalið, þá hef ég ekki fengið svo mikið sem brúkanlegan leikmann úr unglingaliðinu í laaangan tíma, þrátt fyrir að vera með max einingar í því. Hundfúlt.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 4, 2008 18:37:05 GMT 1
Takk fyrir þetta. Gott að eiga þig að en kerfið til að leita að mönnum er virkilega gott, kom mér á óvart hve gott það er. Þú mátt eiga von á langlokum annað slagið En fín æfing í íslenskunni ekki satt!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 4, 2008 18:54:43 GMT 1
Já, leikirnir liggja nú fyrir og ég fæ 4 leiki til að móta hópinn. Vildi gjarnan fá fleiri en þetta eru fleiri en í HT and Basketsim svo ég get ekki kvartað!
Það er sterkt að vinna sem flesta vegna þess að rank stjórnar styrkleikahópunum og því gott að safna í sarpinn. Hins vegar ætla ég mér að halda mér við það plan sem ég sagði í byrjun og freista þess að byggja upp nýtt lið og til þess þarf reynslusöfnun sem og tíma til að finna út hverjir passa saman og sjá hvernig menn koma út í leikjunum. Og það verður í forgangi í þessum leikjum. 'Eg mun prófa nokkra leikmenn en um leið reyna að búa til kjarna í liðinu þó að hann geti auðvitað breyst.
Eins og Blesi segir á ég eftir að verja nokkrum tíma til að skoða skytturnar og ég hef ekki lokað neinum dyrum þar. Reyndar vil ég vera með amk 25 manna hóp, 3 MA, LS, LM, 5-6 hornamenn og 6 skyttur.
Varðandi andstæðinga okkar að þá fáum við Holland sem er greinilega að byggja upp eins og við. Svía sem eru með sterkt en gamalt lið. Spánverja sem eru ekki "bara" tvöfaldir heimsmeistarar heldu er allt liðið ungt þar að auki! Síðan fáum við Bosníumenn en þeir eru með blandað lið. 'Eg mun fjalla um leikina þegar nær dregur. Það er ljóst að við verðum ekki með fullmótað lið strax og þar að auki eigum við tvö erfiðleika að stríða, annars vegar skort á línumönnum (tek 2 gamla inn til viðbótar en einn er í fýlu þar sem hann var tekinn út úr liðinu, veit ekk hve lengi hann er í fýlu vegna þess) og meiðsli en við vinnum jákvætt úr þessu.
Góða helgi allir saman!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 4, 2008 19:13:05 GMT 1
Gleymdi að minnast á að Svíar komust í úrslitakeppni síðasta HM, 12 liða úrslit.
|
|
|
Post by blesi on Apr 4, 2008 19:29:43 GMT 1
Ef ég man rétt þá eru menn ekki lengi í fýlu. Já, fann það núna að Anders sagði að þú ættir að geta valið hann aftur eftir 3-4 daga. If i released player from NT, how much does it take when i can ask him back? This the player gets Bitter and will refuse to get on the national team for 3-4 days.
|
|