|
Post by noteboom on Apr 4, 2008 21:27:47 GMT 1
Takk fyrir þetta, þetta er mikiklvægt.
Gleymdi því að ég þarf sjálfsagt að finna þriðja markvörðinn, það er að 3 MA verður yfir þeim aldri sem ég miða við.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 5, 2008 19:03:04 GMT 1
Jæja, þá er komið að því! Fyrsti undirbúningsleikurinn á mánudag og hann er gegn Hollandi. Það er mikill áhugi á hollenska spjallborðinu fyrir leiknum og skemmtilegt að skoða það. 'Eg hef ekki farið mjög djúpt í bréfin þar en mér sýnist sumir þar vilja yngja liðið meira. En lið þeirra er mjög ungt, virðist vera svipaðar pælingar og hjá okkur svo að þetta er bara fínt og efnilegt lið hjá þeim.
Þeirra styrkleikar, því miður eru gamlir æfingarleikir teknir út auk þess sem að maður sér ekki hvort menn hafa verið áður með landsliðið en ég miða við upplýsingar úr HM, eru mjög sterkir hornamenn, fínn miðjumaður og línumaður sem getur dottið í mikið stuð en er þó misjafn.
Það sem ég legg upp með er að skoða hvernig sá kjarni, sem ég hef í huga, nær sama. Einnig vil ég finna út skyttunar sem spilar með Arnari Esbjörnssyni. Þeir sem eru í hópnum munu spila amk einn fjórða úr leiknum fyrir utan hornamennina og vara línumanninn. Ég þekki vara hornamennina vel. Reyndar sá ég það á Skarphéðni að það er munur á að spila í landsliðinu annars vegar og félagsliði hins vegar eins og eðlilegt er. En þeir spila 10% alla vegana. Erlendur lítur vel út og spilar með Skarphéðni. Línumannsstaðan er vandamál, Jóhann Magnúss enn í fýlu svo að Ólafur með vera varamaður þar þangað til hann kemur úr fýlu.
Við munum prófa að klippa hornamann þeirra úr umf, annan þeirra og sjáum til hvaða áhrif það hefur. ég hef verið að prófa þessar varnaraðferðir og er svona kominn með ákveðnar skoðanir en þetta tekur tíma. Ég vil ekki taka báða þó freistandi sé þar sem þó held ég að miðjumaður og línu muni brillera hjá þeim. Hef velt svolítið fyrir mér hvernig varnarþátturinn er byggður upp í leiknum. 'I RL handbolta er varnarvinnan lykillinn að árangri í vörn en ég átta mig ekki alveg á því hérna.
En alla vegana, svona byrjum við vinnuna við þetta lið!
|
|
|
Post by blesi on Apr 7, 2008 21:22:34 GMT 1
Jæja. Fyrsti leikurinn búinn og hann sigurleikur á móti nokkuð jöfnum og sterkum hollendingum, glæsilegt það. Flott að sjá líka að fýlan rann af Jóhanni, þrátt fyrir að það virðist hafa gleymst að setja hann á vítalínuna Uss, djöfull er það slakt að skora bara úr 1 af 4 vítaskotum, en þetta er nú bara það sem við búum við. Að öðru leyti allt saman mjög gott.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Apr 7, 2008 22:06:18 GMT 1
Þetta byrjar ágætlega. Þú varst að velja réttur maðurinn til að varna en hann meiddi sig í 21 mínuta, svo við vorum pínu heppnir. Núna að halda áfram svona.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 7, 2008 23:03:16 GMT 1
Takk fyrir þetta. Maður vill alltaf vinna og ég er ánægður með það. Ekki síst þar sem Ísland á í hlut og það er miklu meira undir eðilegra þegar maður stjórnar íslenska landsliðinu heldur en td því danska eins og ég geri í öðrum leik. Hins vegar er ég með það í forgangi að skoða mennina og reyna að hafa liðið klárt þegar keppnin hefst, miðað við þær forsendur sem ég lagði upp með sem eru að móta til sem gæti toppað í þar næstu keppni. 'Eg er mest að skoða hvaða skytta henti best með Arnari og í þessum leik stimplaði Sebastian Thorvardarsson sig vel inn. Erlendur Magnússon er meiddur og ég vil endilega sjá hann í leik, vona að hann verði klár í næsta leik en það er tæpt. Fleiri eru í þessum slag eins og td Björn Thorsteinsson og Steinar Björnsson.
Lykillinn að því að svona uppbygging gangi upp er að það sé verið að þjálfa þessa menn. Svo er ekki með td Robert Thorsson og því dettur hann út úr þessari baráttu þó að gott sé að hafa hann í hópnum til öryggis. En ég hef einmitt verið að athuga hvað þjálfarar eru að þjálfa, bæði innlendir og erlendir.
Að leiknum. Mjög athyglisverður. 'Eg gerði þau mistök að vara mig ekki á því hvaða hólf uppstillingin ætti við, bara þó búinn að raða liðinu í öll til öryggis. Hefði getað spurt Blesa en þóttist alveg pottþéttur. Þess vegna spiluðu allir varamenn í einn fjórða af leiknum! En það einmitt ekki til með horn og línu! Það munar töluverðu enn þá á varamönnum í hornið og aðal svo ég held að þar hefðum við átt eitthvað inni. Hollendingar fengu hærri einkunnir en okkar menn skoruðu allir, byrjunarmenn meina ég, en bara 3 leikmenn hollendinga skoruðu. Það segir mér að okkar menn séu jafnari. En vítanýting okkar var hræðileg! Línumaður þeirra brilleraði eins og mér datt í hug svo að ég er ánægður með að hafa ekki farið í 4-2, held að hann hefði skorað enn fleiri þá.
Næst eru það svíar en þeir gerðu jafntefli við Pólland í dag á útivelli. Leiddu allan leikin nema í restina. Hörkugott lið, allir útimenn með yfir 40 í einkunn en liðið er gamalt. Væntanlega prófa ég Thor í skytturstöðunni í þessum, ekki alveg ákveðinn en meira um það síðar!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 9, 2008 12:05:01 GMT 1
Jæja, á morgun eru það Svíar. Þeir eru með feiknalega gott lið. Byrjunarmenn þeirra í síðasta leik voru allir með yfir 40 einkunn að MA og LS undanskildum. Þeir fóru áfram úr riðlakeppninni síðast og eru virkilega þéttir. Þeir eru með marga gamla en ekki eins gamla og mér fannst þegar ég leit hratt yfir mótherja okkar í þessum æfingarleikjum. Þeir voru síðan að taka efnilegan 19 ára gutta inn fyrir stuttu og vilja sjálfsagt sjá fleiri.
Pólverjar spiluðu 4-2 á móti þeim. 'Eg hef áður sagt að ég hef efasemdir um það þegar maður mætir jafnsterku liði því að hinir fá aukakraft upp á nokkur % auk þess sem að svæðið sem þeir hafa er stærra. 'Eg vil samt ekkert útiloka það að ég noti það einhvern tímann, jafnvel gegn svíunum. En í þessum leik virkaði þetta ekki hjá pólverjunum, þeir fengu 34 mörk á sig og máttu þakka fyrir jafnteflið þrátt fyrir að vera á heimavelli og vera sjálfir með mjög gott lið. Annar þeirra sem þeir tóku úr umferð skoraði 7 mörk en reyndar 4 úr vítum.
Ég hef ekki gert enn endanlega upp við mig hvernig ég legg þennan leik en mjög líklega klippum við annan hornamann þeirra út. Síðan mótast þessir leikir mjög af því að ég er að skoða menn. 'Eg veit það að það er ekki sanngjarnt þegar maður er að dæma menn eftir einn leik eða jafnvel 25% af leiknum en málið er að við höfum eingöngu 4 leiki og á þeim tíma þarf ég að finna hópinn. Svo að ég held áfram að skoða menn. Línumaður, hornamenn, leikstjórnandi og markvörðu liggur fyrir. Milljón króna spurningin er um skyttustöðuna. 'I þessum leik mun Thor Sigtryggsson spila í 75%, og í 25% Erlendur Arngrimsson og Sebastian Thorvardarsson.
Gegn Spánverjum, sem er náttúrulega langerfiðasti leikurinn, munu svo Steinar Jonsson, Erlendur Magnusson og Olaf Arason spila eftir hluta af leiknum. Í síðasta leiknum gegn Bosníu mun svo ég prufukeyra liðið.
'Eg bætti inn í hópinn, til að hafa menn til vara ef meiðsli koma upp, Geir Ægissyni (skytta og leikstjórnandi), Viggo Jonssyni (hornamaður) og Geir Geirssyni (markmanni) en þessi leikmenn eru allir eingöngu varaskeifur sem stendur.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 12, 2008 11:13:46 GMT 1
Jæja, góður sigur á svíum í gær! Alltaf nauðsynlegt að vinna þessa svía Þeir komust í 1-0 en eftir það réðum við lögum og lofum og sigurinn miðað við leiktölur var mjög öruggur. Þeir skiptu liðinu jafnt og notuðu sem sagt 50-50 skiptingu. 'Eg hins vegar ákvað að halda áfram því sem ég talaði um, það er að leggja áherslu á skyttuleikina og dró reyndar aðeins úr leiktíma markvarðarins auk þess sem Hlynur fékk minni tíma í LS en síðast. 'Eg vildi sjá hvað við gætum gert gegn sterku liði. Svíarnir eru með mjög jafnt lið og því var þetta gott tækifæri. Síðan fengum við þann bónus að fá fullt af rankstigum vegna sigursins. Næst eigum við Spán, sem vannn Pólland 24-20 en pólverjar gerðu jafntefli gegn svíum í fyrsta leik. Þar mun ég láta menn spila meira og þeir sem ég talaði um síðast varðandi skyttustöðu og leikstjórnanda fá meira að spila. Lokaleikurinn gegn Bosníu verður hins vegar generalprufa fyrir mótið.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Apr 12, 2008 11:35:22 GMT 1
vá! Frábær leikur, þetta gengur mjög vel, 2 af 2. Næstur leikur á moti Spáni, erfiður leikur. En ég helt með Ísland í HaMa. Ef þú vilt að fá upplysing ég get að njósa þar
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 12, 2008 12:04:49 GMT 1
Jæja, góður sigur á svíum í gær! Alltaf nauðsynlegt að vinna þessa svía Þeir komust í 1-0 en eftir það réðum við lögum og lofum og sigurinn miðað við leiktölur var mjög öruggur. Þeir skiptu liðinu jafnt og notuðu sem sagt 50-50 skiptingu. 'Eg hins vegar ákvað að halda áfram því sem ég talaði um, það er að leggja áherslu á skyttuleikina og dró reyndar aðeins úr leiktíma markvarðarins auk þess sem Hlynur fékk minni tíma í LS en síðast. 'Eg vildi sjá hvað við gætum gert gegn sterku liði. Svíarnir eru með mjög jafnt lið og því var þetta gott tækifæri. Síðan fengum við þann bónus að fá fullt af rankstigum vegna sigursins. Næst eigum við Spán, sem vannn Pólland 24-20 en pólverjar gerðu jafntefli gegn svíum í fyrsta leik. Þar mun ég láta menn spila meira og þeir sem ég talaði um síðast varðandi skyttustöðu og leikstjórnanda fá meira að spila. Lokaleikurinn gegn Bosníu verður hins vegar generalprufa fyrir mótið. Frábært gerist ekki betra en þetta! En mig langar að spyrja út í leikmann sem ég var að ná í úr unglingaliðinu: Sebastian Halvorsson Raðnúmmer leikmanns: 308500 Land: Ísland Lið: HC Reykjavik Úr unglingaliði: HC Reykjavik Fyrverandi lið: HC Reykjavik Vikur hjá klúbbi: Alla tíð Aldur: 18 Hæð: 184 sm Verðgildi: 4 670 Laun á viku: 6 480 kr. Markvarsla: - Fótavinna: 6 Sendingar: 9 Skapandi: 1 Hraði: 14 Vinna án bolta: 13 Vítaskot: - Reynsla: - Úthald: 55 Mörk skoruð í deildinni: 0 Hann er hornamaður og ég tek strax eftir því að hann virðist betri en sumir af hornamönnunum sem ég nota í aðalliðinu. En hversu efnilegur er hann, er hann nógu efnilegur til að enda í landsliðinu?
|
|
|
Post by noteboom on Apr 12, 2008 12:21:00 GMT 1
jimmyfloyd: Fínt ef að þú njósnaðir aðeins þar. Spánn er, sýnist mér, langsterkasta landslið heims í dag svo að við munum leggja áherslu á að skoða leikmenn og láta þá spila amk viðunandi leiktíma. Svo að skyttu og leikstjórnendur munu spila í með 75-25 skiptingunni. 'Eg hef verið að njósna á horninu þeirra en flott að fá þig til aðstoðar.
jonhelgi, hann er mjög efnilegur. Sjálfur fékk ég 3 óvenjuefnilega hornamenn og þeir eru klárlega 3 af fjórum bestu hornamönnum okkar. En hann gæti með því að fá að spila tvisvar í viku gert tilkalll eftir nokkur tímabil. Þarf að vera hraður með að hækka sig en það er möguleiki. En kannski ekki týpa sem að maður breytir öllu út af ef að þú ert með aðra þjálfun í huga.
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 12, 2008 12:34:45 GMT 1
jonhelgi, hann er mjög efnilegur. Sjálfur fékk ég 3 óvenjuefnilega hornamenn og þeir eru klárlega 3 af fjórum bestu hornamönnum okkar. En hann gæti með því að fá að spila tvisvar í viku gert tilkalll eftir nokkur tímabil. Þarf að vera hraður með að hækka sig en það er möguleiki. En kannski ekki týpa sem að maður breytir öllu út af ef að þú ert með aðra þjálfun í huga. Þetta er langefnilegasti leikmaðurinn í liðinu og hinir hornamennirnir eru flestir í hópi verstu leikmannanna í liðinu þannig að ég þarf að þjálfa hornamenn hvort sem er.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 12, 2008 12:51:15 GMT 1
Kíldu á það. Fínt verð á markaðnum fyrir hornamenn svo að það hvetur líka Púllaðu reglulega hornamenn og passaðu þig á að hafa þjálfarana 250. Ekki það að þú vitir þetta ekki! Sorry, þessar ráðleggingar voru ekki illa meintar!
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 13, 2008 16:25:45 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1208001075" source="/post/44692/thread"]Kíldu á það. Fínt verð á markaðnum fyrir hornamenn svo að það hvetur líka Púllaðu reglulega hornamenn og passaðu þig á að hafa þjálfarana 250. Ekki það að þú vitir þetta ekki! Sorry, þessar ráðleggingar voru ekki illa meintar![/quote] Ekki tók ég því illa heldur.
|
|
|
Post by blesi on Apr 13, 2008 23:52:32 GMT 1
Já, til hamingju með sérdeilis glæsilegan sigur...og það á útivelli í þokkabót! Eins er það glæsilegt að sjá kjarna liðsins svona ungan, að línumönnunum undanskildum. Synd að það skuli svo fáir vera að þjálfa línumenn, þar sem ég á eina 2 sæmilega efnilega (annar að vísu 22 ára en hinn 18) sem ég væri til í að láta í hendurnar á manni sem vildi þjálfa þá. Reyni þó jafnvel að selja þá og vona að kaupandinn sé ekki bara að leita að uppfyllingarmönnum.
|
|
|
Post by noteboom on Apr 14, 2008 11:59:22 GMT 1
Takk fyrir þetta.
Við eigum Spán í dag og ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína að þeir séu langbesta liðið í dag. Og ekki "bara" vegna þess að þeir séu tvöfaldir heimsmeistarar. Við reynum auðvitað alltaf að vinna en ég verð trúr mínum ákvörðunum fyrir þessa fjóra leiki og held áfram að skoða menn. Liðið verður þeim þeim kjarna sem verið hefur en í skytturstöðuna í dag kemur Erlendur Magnusson spila hann þrjá fjórðu hluta leiksins. 'Eg hef mikla trú á þessum manni og eins og staðan er í dag stendur valið milli hans og Sebastian Thorvardarsson, en hann hvílir hins vegar í dag. Einn fjórða af skyttustöðunum spila Steinar Jonsson og Thor Sigtryggsson en hann er okkar langbesta vítaskytta og á sæti sem slíkur eins og er. Olaf Arason spilar sinn fyrsta leik í dag hvílir Hlyn. Með því hafa allir þeir sem ég talaði um fengið að spila. Bæði Olaf og Steinar eru feiknalega efnilegir leikmenn og því vildi ég nota tækifærið til að gefa þeim reynslu. Þetta er framtíðarmenn í liðinu ásamt fleiri mönnum. Framtíðin, fyrir utan línu og mark, er björt en hins vegar svolítið gat enn en það minnkar fljótt.
Við munum nota undantekninguna og taka tvö út í dag, báða hornamennina. 'Astæðurnar eru tvær. A) 'Eg vil ekki að menn geti gengið frá því sem vísu að ég spili alltaf sama kerfið (sem ég geri reyndar ekki) og B) hornamennirnir þeirra eru magnaðir.
'Eg bætti einni skyttu í hópinn. Mun ekki nota hann á næstunni en vildi fylgjast með þróun hans því ég hef trú á honum. Þetta er Þórir Thorsteinsson.
Látum þetta duga í bili!
|
|