|
Post by jonhelgi on Jan 9, 2008 20:28:29 GMT 1
Jæja uppgjör toppliðanna lokið í fyrri umferð, það er farið að halla verulega undan fæti hjá mér og Hauka liðinu mínu, HC Reykjavík sigraði leikinn með einu marki í verulega jöfnum leik, ég er verulega svektur en það er nú ennþá helmingur eftir af mótinu. HC RVK hafa sigrað alla sína leiki og eru verðugir þarna á toppnum ungt og efnilegt lið meðan Haukarnir eru með lið svona í eldra horninu sem er jafnvel ekki að falla með þeim. En við sjáum til í seinni umferðinni, bara gaman að þessu. Takk fyrir leikinn. Sigurinn kom mér á óvart vægast sagt. Ég þorði ekki að leggja neina ofuráherslu á leikinn vegna komandi leikja og var bara að vona það besta. Leikurinn var mjög spennandi, meiðsli í báðum liðum og einn af mínum leikmönnum fékk rautt spjald. Ég er ekki enn búinn að sjá hvernig mitt lið geti sigrað í öllum leikjum í fyrri umferðinni ég trúi því svona mátulega fyrr en ég sé það. En varðandi seinni umferðina á ég fastlega von á að tapa stigum gegn þínu liði og jafnvel 2 öðrum liðum og þar með skýst þú á toppinn í deildinni. Þú ert með betra lið en ég að mínu mati og ættir að ná toppsætinu áður en yfir lýkur. Ég er að spá í að gera ekkert í leikmannamálum nema kannski selja einhverja uppalninga. Riðillinn okkar er orðinn ansi sterkur annað en þegar ég byrjaði í honum maður hefur fáa leiki núna sem maður getur tekið létt.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Jan 11, 2008 21:42:59 GMT 1
Strákar ætlið þið ekkert að fara að koma ykkur upp í úrvalsdeildina?
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 13, 2008 18:04:47 GMT 1
Strákar ætlið þið ekkert að fara að koma ykkur upp í úrvalsdeildina? Ég er svo til nýbyrjaður í þessum leik að ég hef ekki nægilegt vit á honum og vitneskju til að fara upp. Ef ég lendi þar þá er það fyrir einskæra heppni og tilviljun. Ég hef ekki lið í að vera í úrvalsdeildinni held ég.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Jan 15, 2008 0:25:42 GMT 1
Mér sýnist nú HC og Haukar ekkert lakari en lakari liðin í úrvalsdeildinni. Fyrir utan að það þarf ekkert vit til að vera í Úrvalsdeildinni, sjáiði bara mig ;D
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 15, 2008 1:53:08 GMT 1
Mér sýnist nú HC og Haukar ekkert lakari en lakari liðin í úrvalsdeildinni. Fyrir utan að það þarf ekkert vit til að vera í Úrvalsdeildinni, sjáiði bara mig ;D Góður!!!
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Jan 15, 2008 2:04:55 GMT 1
Maður reynir að sjálfsögðu að komast upp, hef verið í efstu deild tvisvar en aldrei sinnt liðinu neitt af neinu viti bara svona kíkt á þetta. Ég hef tekið þá leiðina á þetta núna að kaupa bara leikmenn sem geta eitthvað, ég átti auðvita mjög mikinn pening fyrir þetta tímabil þar sem ég hafði aldrei pælt neitt í þessu og ekkert verið að kaupa neitt af leikmönnum, er með frekar stóran völl og fæ ávallt mikið af seðlum fyrir hvern leik. Ég er örlítið sár yfir því að vera ekki efstur eins og er í deildinni, ekki það að HC eigi þetta ekki fullkomnlega skilið en ég var bara búinn að eyða svo miklum pening í þetta lið, hver einn og einasti byrjunarmaður hjá mér er á fyrsta seasoni hjá núna, hef ótrúlega miklar væntingar til þjóðverjans í horninu hjá mér hann er nýkominn úr meiðslum setti 15mörk í síðasta leik, hann verður vopnið sem kemur mér upp...eða við skulum sega það ;D;D Jafnteflis leikur minn gegn meðal liðinu JAJA11 gæti reynst krítdískur þegar upp er staðið, skil ekki ennþá hvernig sá leikur endaði jafntefli heheh. fattila: hvaða liði ert þú að stjórna?
|
|
|
Post by noteboom on Jan 15, 2008 16:01:21 GMT 1
Þetta er allt af skemmtilegra þegar maður leggur smávinnu í þetta. Þarf ekki að vera mikið til að meiri ánægja sé. Hef fína reynslu af því sjálfur. 'Akvað fyrir nokkrum tímabilum að breyta liðinu all hressilega og byggja upp. Kostaði mig fall en núna er hlutirnir farnir að koma hratt. Svo hratt að ef ég vinn síðasta leikinn í fyrri umferð, eins og góður möguleiki er á, verð ég kominn með fleiri stig eftir fyrri umferðina heldur en ég hef fengið á heilu tímabili áður!
|
|
|
Post by noteboom on Jan 16, 2008 11:19:03 GMT 1
Ég verð víst að leiðrétta sjálfan mig! Hingað til hef ég mest fengið 12 stig en núna hef ég 11 eftir fyrri umferðina. Svo ég þarf tvö stig í viðbót til að bæta metið. Stefni að því að ná því þegar í næsta leik!
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Jan 17, 2008 1:13:58 GMT 1
Vonandi gengur það upp hjá þér vinur.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 17, 2008 21:30:45 GMT 1
Þetta er búin að vera ótrúleg fyrri umferð hjá HC Reykjavík. Allir leikirnir unnist og sumir af þeim gegn sterkari liðunum í riðlinum á útivelli. Þetta getur ekki gengið svona endalaust og því er eins gott að njóta þess á meðan það varir!
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Jan 21, 2008 21:35:18 GMT 1
Já breytingar koma niður á árangri eins og ég er að kynnast núna. Hinsvegar er framtíðin björt hjá Misfits, búið að yngja liðið upp nú síðast með klassa púlli:)
|
|
|
Post by hjalmar on Jan 23, 2008 2:00:14 GMT 1
Jæja ég er nýr hérna, tók við liði í kvöld og skírði það Íþróttabandalag Vestmannaeyjar, tók við því rétt eftir einn leik þannig ég hef ekki ennþá upplifað það að spila leik, verð ég að vera viðstaddur á meðan? Hvernig fer leikurinn fram? Sé að það er fullt af íslendingum hérna er kannski málið að láta vini sína vita af þessu og koma þessu í gang?
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Jan 23, 2008 22:45:22 GMT 1
Velkominn. Þú Þarfst ekki að vera viðstaddur.
|
|
|
Post by jonhelgi on Mar 5, 2008 19:35:53 GMT 1
Ég er búinn að komast að því að ef maður hefur 40 manna leikmannahóp þá getur maður ekki bætt við hópinn. Þannig að ég er búinn að reka einn (púllaði einn sæmilegan í staðinn) og setja 5 á útsölu.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Mar 7, 2008 10:23:06 GMT 1
They love your team
|
|