|
Post by blesi on Aug 27, 2007 1:08:28 GMT 1
Ekki svo ég viti til. Hef fundið svakalega lítið skrifað um þennan leik í rauninni. Það gildir bara að prófa sig áfram.
|
|
|
Post by noteboom on Aug 29, 2007 10:44:08 GMT 1
Loksins komst maður inn á þetta spjallborð!
Ég myndi ráðleggja þér að stækka völlinn hratt en rólega fyrsta tímabilið! Það er, stækkaðu en gefðu þér 2 leiki til að sjá hvernig aðsókn er, það er betra að gera það rólega. Og ekki vanmeta VIP stúkuna.
'Eg ákvað fyrir 2 tímabilum að henda út megninu að liðinu og byggja upp innan frá. Því miður kostaði það fall og hafði það mikil áhrif á aðsóknina. Hún kom svo aftur við gott gengi í 2 deild og fór ég strax aftur upp. Ég þarf líklega 2-3 tímabil með þetta lið áður en það fer að gera rósir en ég hef þolinmæði í það. Hins vegar sýnist mér að fjölhæfni leikmanna skipti meira máli en um er talað. Get auðvitað ekki sannað það en get nefnt sem dæmi að ég fórnaði þjálfun skyttu í stkyttustöðu í amk hálft tímabil til að gera hann meira skapandi. hann er núna sá 4 markahæsti í efstu deild þó að hann sé alveg örugglega töluvert á eftir í ekta skyttutölum. Hef einnig rekið mig á þetta með línumann svo ég allavegana hef grun um að þetta telji.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 29, 2007 23:15:24 GMT 1
Ég þakka ráðleggingarnar. Ég á örugglega eftir að fara eftir þeim.
|
|
|
Post by blesi on Aug 30, 2007 1:42:18 GMT 1
Nei sko! Noteboom mættur. Gaman að sjá þig komast hingað inn. Ég hugsa að það sé heilmikið til í þessu hjá þér varðandi fjölhæfni. Sem dæmi held ég að ég sé með einhverjar rosalegustu skytturnar í deildinni en engu að síður eru þeir aldrei á meðal efstu manna í skorun. Reyndar skora ég almennt bara ekkert rosalega mikið miðað við stöðu í deildinni. Á móti fæ ég reyndar tiltölulega lítið af mörkum á mig. Mér þætti rosalega gaman að átta mig á því hvað það er nákvæmlega sem stýrir þessu...
|
|
|
Post by noteboom on Aug 30, 2007 9:38:01 GMT 1
Já, varnarhlutinn er umhugsunaratriði.
Markvörður skiptir klárlega mjög miklu máli, sjálfur hef ég ekki nægilega góðann og mun líklega ekki kaupa slíkann fyrr en seint á þessu tímabili eða upphafi þess næsta.
'Eg hef velt fyrir mér hversu mikið höfundur þessa leiks kann í handbolta. Sem fyrrverandi leikmaður í efstu deild að þá veit ég að fótavinna er lykillinn að árangri í vörn svo það er spurning hvort að það sé málið? Veit það ekki, en það er ferlegt að varnarkerfin séu ekki að virka. 'Eg hélt lengi að þau skiptu máli því að eftir að ég breytti þeim fór ég að fá mikið minna af mörkum á okkur en hef komist að því að það var eitthvað annað þar á ferð!
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 1, 2007 20:11:45 GMT 1
Ég fékk ágætan markvörð með liðinu þannig að það er ekki vandamálið. Eins fékk ég ágætis leikstjórnanda. Allt í allt er liðið mjög jafnt eftir að ég keypti þrjá leikmenn. Ég nota innáskiptingar nokkuð mikið miðað við önnur lið sem ég hef spilað gegn og mér sýnist að það komi mér oftast til góða. En ég verð að segja ykkur eitt frekar fyndið að mínu mati. Ég sótti strax um að verða fluttur í Íslenska deild en það gerðist bara mun fyrr en ég átti von á þannig að ég var búinn að setja upp liðið eins og ég væri að fara að spila við bot. En ég tékkaði ekkert á liðinu fyrr en daginn eftir leikinn og þá hafði ég verið að spila við efsta liðið í riðlinum! Ég tapaði honum að sjálfsögðu en hefndin er sæt og ég vann svo sama lið í dag. Það spillti ekki fyrir ánægjunni að ég velti þeim þar með úr fyrsta sæti!
|
|
|
Post by noteboom on Sept 9, 2007 1:24:42 GMT 1
2 jafntefli í röð! Það er ekki eins og það sé ekki spenna í leikjunum En allavegana er það að sýna sig að þær breytingar sem ég gerði voru réttar og liðið er á réttri leið!
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Sept 9, 2007 5:07:35 GMT 1
Sælir félagar, það er loksins eitthvað farið að gerast hérna á spjallinu. reyndar ekki það aðgengilegasta en það er allavega að fjölga hérna.
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 9, 2007 12:07:54 GMT 1
Það er alla vega gott fyrir mig nýliðann í þessum leik að geta spjallað við einhverja sem hafa meiri reynslu en ég.
|
|
|
Post by blesi on Sept 10, 2007 13:15:59 GMT 1
Hey! fattila mættur líka, hresst. Það er aldeilis rosalegur leikur á dagskrá á morgun. Vona bara að heimavöllurinn reynist þér ekki of drjúgur.
Að öðru: Fyrst að allir eru að koma hingað inn er ekki úr vegi að segja aðeins frá landsliðinu. Nú eru 4 leikir 5 fimm í riðlunum búnir og við erum í 3. sæti. Ég reikna með því að við endum í 4. sæti og er það mjög eðlilegt miðað við getu. Nú áðan töpuðum við fyrir Eystrasaltríkjunum og var það nokkuð svekkjandi, en á sama tíma ekkert óvænt. Sem áður eru hornamennirnir okkar alltof slakir.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Sept 10, 2007 23:58:40 GMT 1
Já þetta verður spennandi á morgun. það var samt óþarfi hjá mínum mönnum að tapa stigi í síðasta leik, vona bara að það verði ekki það sem ræður úrslitum þegar upp er staðið.
Já þetta er satt með hornamennina, hvernig er það er enginn okkar að þjálfa hornamenn?
|
|
|
Post by noteboom on Sept 11, 2007 11:16:57 GMT 1
Ég er að þjálfa hornamann að hluta. Mikið efni en gengur ótrúelga hægt í þjálfun á þeim hluta sem hann vantar. En hann er samt allur að koma til. Frábær án bolta og hraðinn er allur að koma.
|
|
|
Post by blesi on Sept 12, 2007 11:56:20 GMT 1
Já, það er einmitt mjög gott að vita til þess að það er einhver að þjálfa hornamenn. Ekki fór leikurinn nú ekki alveg nógu vel í gær, en hornamennirnir og markvörðurinn virðast hafa verið helsti munurinn. Enda hef ég verið að leita að markverði í nokkurn tíma og þarf að fara að upgrade-a hornamennina. Stefnan er svo á sigur í öllum leikjum sem eftir fer og vonast bara eftir því að einhver stig tapist hjá Akranes Misfits. Það er nú líka alveg möguleiki þar sem þú átt eftir tvo erfiða útileiki...sem eru einmitt tveir næstu leikir. Til hamingju með sigurinn í gær.
|
|
|
Post by noteboom on Sept 13, 2007 15:44:51 GMT 1
'Eg hef ákveðið að einbeita mér 100% að þjálfun hornamanna í einhvern tíma. Fékk allt of gott efni til að geyma það lengur að þjálfa hann á fullu!
Get vel ímyndað mér að það sé skortur á markvörður. Það er meira að segja skortur á þeim í markaðnum yfirhöfuð!
|
|
|
Post by blesi on Sept 14, 2007 15:21:34 GMT 1
Við erum reyndar svo heppnir að eiga Björn Thorsteinsson, sem er alveg ágætis markvörður og einungis 23 ára, en það er svo alveg rétt að það virðist ekki vera neitt rosalegt framboð á markvörðum með hátt í markvörslu. Það er hins vegar til alveg nóg af mönnum með hátt í fótavinnu. Enda hef ég lengi verið að leita að tiltölulega ungum mönnum með hátt í markvörslu. Við vorum rétt í þessu að tapa fyrir króötum í síðasta leiknum í riðlinum og kom það lítið á óvart, enda króatarnir með rosalega sterkt lið. Ég er sjálfur nokkuð sáttur við árangurinn í keppninni, 5 marka töp á móti bæði spánverjum og króötum, sem eru gríðarlega sterkar þjóðir. Ég spái svo spánverjum eða frökkum sigri í mótinu, þó að þjóðverjar eða jafnvel ungverjar komi líka til greina.
|
|