|
Post by jonhelgi on Aug 14, 2007 12:09:30 GMT 1
Jæja ég vann aftur í alvöru leik. En eitthvað virðist það vera að vefjast fyrir mér hvernig á að setja inn vítaskytturnar! Sá sem tók öll vítin í dag (var búinn að setja inn a.m.k. 6 sem gátu tekið víti) átti að vera sjötta vítaskyttan og brenndi af öllum vítunum! Geri aðrir betur! ;D Hvað tákna eiginlega tölurnar fyrir aftan nöfnin á leikmönnunum? Tákna þær kannski hvað margar tilraunir þeir fá áður en annar tekur við?
|
|
|
Post by blesi on Aug 15, 2007 0:59:30 GMT 1
Hmmm...það er bara hægt að velja 2 vítaskyttur. Tölurnar fyrir aftan tákna svo hversu mörg víti þeir taka já. Hjá mér er þetta t.d. stillt svona: Dominique Agostini 2 : 1 Oskar Guðmundsson, sem þýðir að Agostini tekur fyrstu 2 vítin, Oskar það þriðja og svo Agostini næstu tvö, Oskar næsta o.s.frv.
Svo má reyndar geta þess að ég er enn að ergja mig á því hversu slappir leikmenn mínir eru í vítunum. Auðvitað getur maður kennt sjálfum sér um þar sem maður þjálfar það ekkert...enda borgar þig sig voðalega lítið...þannig lagað.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 15, 2007 1:23:44 GMT 1
Hmmm...það er bara hægt að velja 2 vítaskyttur. Tölurnar fyrir aftan tákna svo hversu mörg víti þeir taka já. Hjá mér er þetta t.d. stillt svona: Dominique Agostini 2 : 1 Oskar Guðmundsson, sem þýðir að Agostini tekur fyrstu 2 vítin, Oskar það þriðja og svo Agostini næstu tvö, Oskar næsta o.s.frv. Svo má reyndar geta þess að ég er enn að ergja mig á því hversu slappir leikmenn mínir eru í vítunum. Auðvitað getur maður kennt sjálfum sér um þar sem maður þjálfar það ekkert...enda borgar þig sig voðalega lítið...þannig lagað. Takk fyrir upplýsingarnar! Þetta skýrir ýmislegt! En það getur munað um hvernig vítin fara í hnífjöfnum leik, getur ráðið úrslitum. Ég brá mér á leikmannamarkaðinn í dag og keypti fjóra leikmenn (einn hækkaði óvænt sitt aðalskill strax eftir að ég keypti hann) alla frekar unga (20-24 ára) og eru þeir betri en leikmennirnir sem fylgdu með liðinu . Held að ég sé búinn að þétta liðið nokkuð vel með þessum leikmönnum og veitir ekki af fyrir næsta leik. Liðið sem ég mæti næst virðist hafa fengið nokkra afar sterka leikmenn með liðinu (miðað við einkunnir þeirra í seinasta leik). Ég verð á heimavelli og ég vona að það dugi mér til sigurs. En í öllu falli er ég kominn með nothæfa leikmenn í allar stöður. Varamennirnir eru heldur ekki slakir svo ég get kannski unnið líka á því að nota þá óþreytta. Hin liðin í riðlinum virðast ekki vera mikið fyrir að nota varamennina!
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 16, 2007 12:18:58 GMT 1
Það má sannarlega segja að manni hafi verið hent út í djúpu laugina í þessum leik. Fyrstu þrír leikirnir eru gegn alvöru liðum (2 búnir og 2 sigrar) á meðan hin liðin í riðlinum hafa mest verið að spila við bot lið. Ég kvarta ekki því maður lærir hraðar svona.
Ég er búinn að kaupa nóg af leikmönnum og ná í efnilega unglinga. Þarf sennilega að selja eða reka eitthvað af leikmönnunum sem fylgdu með liðinu en sé til hvað ég geri í því. Nú er bara að standa sig og helst að vinna riðilinn.
|
|
|
Post by blesi on Aug 17, 2007 0:24:49 GMT 1
Já heyrðu, djöfull hefur hann verið heppinn varðandi leikmenn sem fylgdu liðinu...og hann ekki búinn að vera í leiknum í nema 9 daga þannig að hann hefur ekki getað þjálfa þá að ráði. Gangi þér annars vel. Heimvöllurinn getur verið ótrúlega drjúgur, fáránlega stundum
|
|
|
Post by blesi on Aug 17, 2007 0:33:40 GMT 1
Svo datt mér í hug annað sem er ekki vitlaust að benda þér á að hafa bakvið eyrað, en það er að kaupa leikmenn í samræmi við þjálfunina þína. Ef þú ert t.d. að þjálfa fótavinnu og sendingar (skyttur, algengasta þjálfunin) er ekki vitlaust að fá sér leikstjórnanda sem er með nokkuð hátt í skapandi, en kannski eitthvað lægra í sendingum. Eins að fá sér markvörð sem er með nokkuð hátt í markvörslu en kannski eitthvað lægra í fótavinnu. Þannig ertu að fullnýta þjálfunina. Eins auðvitað borgar það sig að hugsa um það hverjir eru að fá mestu þjálfunina (þjálfun - þjálfa meira í þessum stöðum) en því getur maður auðvitað breytt eitthvað eftir áherslum. Ég t.d. fékk alveg rosalegan leikstjórnanda upp úr unglingaliðinu og þjálfa þá stundum meira í vinstri skyttu (stjörnuna Arnar Esbjörnsson) og leikstjórnanda. Leikstjórnandinn meiddist að vísu strax...en það er annað mál. Ef þú hefur verið búinn að velta þessu fyrir þér biðst ég afsökunar á þessari lengju, en það sakar allavega ekki að benda á þessa hluti.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 17, 2007 0:45:13 GMT 1
Fyrst hélt ég að hann hefði keypt leikmennina en þegar ég athugaði málið betur þá reyndust þeir hafa fylgt liðinu. Ég var svo sem ekkert óheppinn með leikmennina sem ég fékk heldur þó flestir þeirra séu verri en þessir sem hann fékk. Sá sem ég er ánægðastur með er leikstjórnandinn, hann er með alla réttu hæfileikana í stöðuna og er búinn að skora 24 mörk í tveimur leikjum. Hann er líka ekki of gamall þannig að maður ætti að geta bætt hann enn frekar. Markvörðurinn er reyndar 30 ára en sennilega næst besti leikmaður liðsins. Línumaðurinn er líka ágætur en orðinn 30 ára minnir mig. En ég keypti mér leikmenn í hinar stöðurnar til að brúa bilið þangað til að ungmennin sem ég er búinn að ná mér í og á eftir að ná mér í verða orðin nógu góð. Er 11 slæm einkunn fyrir varamann? Þeir sem fá lægstu einkunn hjá mér (af þeim sem ég ætla að nota í aðalliðið) eru að fá einkunnina 11. Enginn hefur alveg náð 20 ennþá en ég bind vonir við leikstjórnandann þar.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 17, 2007 0:54:13 GMT 1
Svo datt mér í hug annað sem er ekki vitlaust að benda þér á að hafa bakvið eyrað, en það er að kaupa leikmenn í samræmi við þjálfunina þína. Ef þú ert t.d. að þjálfa fótavinnu og sendingar (skyttur, algengasta þjálfunin) er ekki vitlaust að fá sér leikstjórnanda sem er með nokkuð hátt í skapandi, en kannski eitthvað lægra í sendingum. Eins að fá sér markvörð sem er með nokkuð hátt í markvörslu en kannski eitthvað lægra í fótavinnu. Þannig ertu að fullnýta þjálfunina. Eins auðvitað borgar það sig að hugsa um það hverjir eru að fá mestu þjálfunina (þjálfun - þjálfa meira í þessum stöðum) en því getur maður auðvitað breytt eitthvað eftir áherslum. Ég t.d. fékk alveg rosalegan leikstjórnanda upp úr unglingaliðinu og þjálfa þá stundum meira í vinstri skyttu (stjörnuna Arnar Esbjörnsson) og leikstjórnanda. Leikstjórnandinn meiddist að vísu strax...en það er annað mál. Ef þú hefur verið búinn að velta þessu fyrir þér biðst ég afsökunar á þessari lengju, en það sakar allavega ekki að benda á þessa hluti. Óþarfi að biðjast afsökunar en þetta er reyndar alveg það sama og ég var að pæla! En leikstjórnandinn sem ég fékk með liðinu er einmitt eins og þú varst að lýsa og unglingurinn sem ég fékk síðast líka. Svo ég er ekki í vandræðum með þetta. Hins vegar þá er ég að æfa markvörslu og fótavinnu núna og aðalmarkvörðurinn hækkaði sig í báðu strax. Eins hækkaði ein skyttan í fótavinnu. Þegar markvarðaþjálfuninni er lokið sennilega í fyrramálið þá verður skipt yfir í fótavinnu og sendingar.
|
|
|
Post by blesi on Aug 17, 2007 15:06:04 GMT 1
Tja, varðandi einkunnir þá auðvitað fer það allt eftir samhengi. Sjálfur er ég t.d. farinn að henda pull-um ef mennirnir eru ekki allavega með svona 13 í báðum aðaleiginleikunum og varamennirnir eru yfirleitt ekki að fá minna en svona 17 í einkunn. Annars sýnist mér þú vera með nokkuð jafnt og þétt lið sem er helvíti gott mál. Leikstjórnandinn á pottþétt eftir að fara yfir 20 þar sem hann er ekki nema 25 ára. Ég einmitt er enn að nota leikstjórnandann sem fylgdi með liðinu...en hann er reyndar orðinn 35 ára, enda mun hann ekki vera aðalleikstjórnandinn á næsta tímabili.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 17, 2007 18:10:50 GMT 1
Tja, varðandi einkunnir þá auðvitað fer það allt eftir samhengi. Sjálfur er ég t.d. farinn að henda pull-um ef mennirnir eru ekki allavega með svona 13 í báðum aðaleiginleikunum og varamennirnir eru yfirleitt ekki að fá minna en svona 17 í einkunn. Annars sýnist mér þú vera með nokkuð jafnt og þétt lið sem er helvíti gott mál. Leikstjórnandinn á pottþétt eftir að fara yfir 20 þar sem hann er ekki nema 25 ára. Ég einmitt er enn að nota leikstjórnandann sem fylgdi með liðinu...en hann er reyndar orðinn 35 ára, enda mun hann ekki vera aðalleikstjórnandinn á næsta tímabili. Ja mikið helvíti ertu harður að henda þeim ef þeir eru ekki með 13 í báðum aðaleiginleikum! Ég myndi alla vega reyna að selja þá eða halda þeim. Já það er enginn áberandi slæmur í liðinu hjá mér nema einn sem ég notaði í fyrsta leiknum en hann er held ég farinn í ruslafötuna annars endar hann þar fyrir rest.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 18, 2007 12:57:26 GMT 1
Jæja fyrsta tapið komið. Leikstjórnandinn klikkaði algjörlega í leiknum og var langt frá sínu besta. Reyndar voru hinir leikmennirnir ekki mikið skárri. Ég stillti á mjög mikilvægur (enda 6 leikir við botta framundan) en það hafði að því er virðist þveröfug áhrif á liðið. En ég átti von á að tapa leiknum þannig að þetta eru engin vonbrigði þannig.
En eru þessar stillingar um mikilvægi leikja kannski ekki að virka?
|
|
|
Post by blesi on Aug 18, 2007 20:25:19 GMT 1
Já, hann klikkaði leikstjórnandinn. Mér skilst að Mikilvægi eigi að hafa áhrif og þá að virka eitthvað svipað og í Hattrick. Annars nota ég það voðalega lítið, enda held ég að það hafi miklu mun minni áhrif í þessum leik. Varðandi pull-in er kannski réttara að segja að ég hendi flestum sem eru undir 3000 í verðgildi, sel aðra eða nota þá. Svo fær maður auðvitað af og til gullmola eins og þennan:
Hlynur Thor Raðnúmmer leikmanns: 199823 Land: Ísland Lið: blesar Úr unglingaliði: blesar Fyrverandi lið: blesar Vikur hjá klúbbi: Alla tíð Aldur: 19 Hæð: 194 sm Meiddur: 2 vikur ( 8 dagar ) Verðgildi: 11 705 Laun á viku: £ 1 373 Markvarsla: - Fótavinna: - Sendingar: 20 Skapandi: 27 Hraði: 2 Vinna án bolta: 9 Vítaskot: 1 Reynsla: - Úthald: 79 Mörk skoruð í deildinni: 7 Mörk skoruð í bikarnum: 0 Mörk skoruð á ferlinum: 7 Treyju númmer: 11 Vildi treyju númmer: skiptir engu
Er reyndar orðinn 19 ára en á eftir að verða alveg rooosalegur. Svo byrjaði hann reyndar á því að meiðast...en kemur bráðum til baka og fær þá þjálfun.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 18, 2007 22:01:48 GMT 1
Já hann er svaðalegur þessi ég vona bara að ég fái einhvern tímann einhvern svona!
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 22, 2007 22:36:27 GMT 1
Síðasta púll fór í ruslið! Núna gat leikstjórnandinn staðið sig enda við bot lið að etja. Hefði nú kosið að hann hefði staðið sig í leiknum á undan og klikkað í þessum!
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 25, 2007 12:39:47 GMT 1
Ég er að fylla heimavöllinn þó ég hafi stækkað hann og verið að spila gegn bot. Er eitthvað til um hversu stór völlurinn á að vera?
|
|