|
Post by jonhelgi on May 15, 2009 21:55:32 GMT 1
Woohoo!!! Loksins tókst mér að fá markvörð! Ótrúlega erfið fæðing það. En núna fer maður kannski að fá færri mörk á sig og þá sérstaklega úr vítum.
|
|
|
Post by noteboom on May 17, 2009 16:10:17 GMT 1
Til hamingju með það! Markvörður er rosalega mikilvægur eins og í HT og RL!
|
|
|
Post by jonhelgi on May 20, 2009 22:20:23 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1242573017" source="/post/69537/thread"]Til hamingju með það! Markvörður er rosalega mikilvægur eins og í HT og RL![/quote] Það má nú segja, mér tókst að vinna hið geysisterka lið CB Calpisa og munaði mikið um það að markvörðurinn varði öll vítaskotin frá þeim.
|
|
|
Post by noteboom on May 21, 2009 1:46:25 GMT 1
Til hamingju. Þeir hafa frábært lið og það er mikið afrek að vinna þá.
|
|
|
Post by jonhelgi on May 21, 2009 10:17:41 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1242866785" source="/post/69657/thread"]Til hamingju. Þeir hafa frábært lið og það er mikið afrek að vinna þá.[/quote] Takk. Fyrir leikinn var ég að vona að ég myndi tapa með sem minnstum mun.
|
|
|
Post by jonhelgi on May 22, 2009 0:29:38 GMT 1
Changes has been made to the game engine about the use of substitues. This means if substitues are not used or play very little the rest of the players will get tyed and play poor in the end
Er þetta virkilega eitthvað nýtt?
|
|
|
Post by noteboom on May 22, 2009 10:28:58 GMT 1
Nei, en hugsanlega eru þeir að auka áhrifin.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 14, 2009 16:11:19 GMT 1
Jæja núna eru bara tvær umferðir eftir, mitt lið öruggt um að haldast í deildinni og þrjú lið að berjast um sigurinn í deildinni. Þessi þrjú lið eiga eftir að vinna sína leiki í næstu umferð það er næstum öruggt, en í lokaumferðinni eigast við tvö efstu liðin. Hvort þeirra vinnur? Það kemur í ljós.
|
|
|
Post by noteboom on Jun 14, 2009 19:12:54 GMT 1
Já, deildin er alltaf að verða sterkari og sterkari. Virkilega spennandi.
Skemmtilegt lið sem þú ert að byggja upp jonhelgi og markvörðurinn klárlega að styrkja það mikið.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 16, 2009 12:01:15 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1245003174" source="/post/70325/thread"]Já, deildin er alltaf að verða sterkari og sterkari. Virkilega spennandi.
Skemmtilegt lið sem þú ert að byggja upp jonhelgi og markvörðurinn klárlega að styrkja það mikið.[/quote]
Takk en það eru frekar gamlir leikmenn í liðinu sem fara að detta út þannig að maður þarf væntanlega að safna fyrir nýjum. Þeir yngri virðast ekki ætla að þjálfast nógu hratt.
|
|
|
Post by noteboom on Jun 20, 2009 19:25:17 GMT 1
'Eg vil óska Blesa til hamingju með sigurinn. Frábært lið og frábært starf bak við það. Vil einnig óska Capisa til hamingju með annað sætið, hann er kominn aftur með dúndurlið! Það hefur alltaf verið gott, það er ekki það!
|
|
|
Post by jonhelgi on Jun 21, 2009 9:56:14 GMT 1
[quote author="[at]noteboom" timestamp="1245522317" source="/post/70525/thread"]'Eg vil óska Blesa til hamingju með sigurinn. Frábært lið og frábært starf bak við það. Vil einnig óska Capisa til hamingju með annað sætið, hann er kominn aftur með dúndurlið! Það hefur alltaf verið gott, það er ekki það![/quote] Ég tek bara undir þetta ekki mikið hægt að bæta við.
|
|
|
Post by blesi on Jun 22, 2009 17:58:17 GMT 1
Þakka ykkur kærlega fyrir það piltar. Ég verð svo að taka undir hrósið í garð Calpisa, enda eina liðið sem ég tapaði fyrir á þessu tímabili ... og það tvisvar! Mun klárlega leitast við að ná fram hefndum á komandi tímabili Komandi tímabil verður svo áhugavert fyrir mig þar sem nokkrir af mínum bestu mönnum eru að komast á aldur, þannig að það mun þurfa að eiga sér stað nokkur endurnýjun, sem mun að einhverju leyti hefjast á tímabilinu.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 24, 2009 20:32:05 GMT 1
Ég er ansi hreint ánægður með sigurinn á Blesum á laugardaginn, ég var ekki að leggja neina sérstaka áherslu á leikinn og einn af mínum bestu leikmönnum gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.
|
|
|
Post by noteboom on Aug 25, 2009 18:13:03 GMT 1
Þú mátt vera ánægður með hann enda Blesar með frábært lið!
|
|