haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Feb 27, 2008 14:32:17 GMT 1
Jæja drengir þá er allt komið af stað í öllum deildum. Sjálfur vann ég gríðarlega tæpan sigur í mínum fyrsta leik þrátt fyrir að einkunnir míns liðs hafi verið töluvert betri en hins liðsinns, ég styrkti minn hóp nokkuð bæði með mönnum sem eru mjög sterkir og líka með ungum leikmönnum sem munu vonandi bæta sig hratt, en þeir byrja útaf flest allir. En hvað sega menn annars og hvernig líst mönnum á komandi átök?
|
|
|
Post by jonhelgi on Feb 27, 2008 19:07:13 GMT 1
Ég held að þú eigir eftir að rúlla þínum riðli upp! Mér tókst sjálfum að vinna fyrsta heimaleikinn en á alveg eins von á því að rúlla niður aftur. Það fer þó talsvert eftir því hversu heppinn ég verð. Ég er ekkert búinn að styrkja liðið og er of latur við að selja eða reka leikmenn. Hvað er annars hámarks stærð leikmannahópsins?
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Feb 28, 2008 0:40:14 GMT 1
Já sá að þú vannst þinn fyrsta leik, aðeins að fylgjast með keppinautanaum síðan síðast ég er ekki allveg viss hvað hámarkið er, ætli það sé nokkuð hámark? veit bara að menn verða að hafa minnst 10menn eða meira í liði, annars er maður rekinn sem stjóri. Hvernig líst ykkur á þetta að maður geti nú stillt upp vörn þar sem geta tekið "úr umfer" eða svona haft mann á einhverjum aðila?
|
|
|
Post by noteboom on Feb 28, 2008 11:59:50 GMT 1
Mjög ánægður með þessa breytingu því að með því fær vörnin eitthvað vægi. Reyndar búin að vera ótrúlega mikil þróun í þessum leik miðað við hvað manni finnst hún hafa verið lítil!!! Líst vel á deildina, allt af að verða erfiðaðri og meira spennandi. 'Eg hef ekki fengið meira fyrir leikmannasölur áður. Seldi unga og efnilega fyrir fínan pening að mínum dómi. En mér liggur ekkert á að kaupa nýja, liðið hefur mótast og styrkts í rólegheitum og, eins og jonhelgi veit, vil ég ekki gjörbreyta liði heldur þróa það
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Feb 28, 2008 12:06:45 GMT 1
Calpisa var að spila á moti blesar, mjög erfiður leikur. það var ekki hægt að vinna, hann er best lið á deldinni og líka ég er með 2 key leikmenn meiddir, eitt af þau Ragnar Alexandersson. Við sjáum til hvernig gengur í timabíl. Kveðjur.
|
|
|
Post by blesi on Feb 29, 2008 3:06:20 GMT 1
Já sælir. Þakka fyrir það jimmyfloyd. Leikurinn var nú annars ótrúlega jafn, sérstaklega þar sem stjarnan þín, Ragnar Alexanders, er meiddur. Annars stefni ég að sjálfsögðu á sigur í deildinni og bind miklar vonir við það að ungu skytturnar mínar bæti sig nokkuð hratt, þar sem ég seldi Felix Fogh Moya undir lok síðasta tímabils til að gefa ungu strákunum almennilega þjálfun. Eins hugsa ég að ég fari að stokka aðeins upp í hópnum og styrkja liðið.
Gangi annars öllum vel.
|
|
|
Post by jonhelgi on Mar 1, 2008 20:24:01 GMT 1
Já sá að þú vannst þinn fyrsta leik, aðeins að fylgjast með keppinautanaum síðan síðast ég er ekki allveg viss hvað hámarkið er, ætli það sé nokkuð hámark? veit bara að menn verða að hafa minnst 10menn eða meira í liði, annars er maður rekinn sem stjóri. Hvernig líst ykkur á þetta að maður geti nú stillt upp vörn þar sem geta tekið "úr umfer" eða svona haft mann á einhverjum aðila? Mér líst vel á þessa breytingu, ég prófaði að taka tvo leikmenn "úr umferð" í kvöld og ég tapaði leiknum með minni mun en ég átti von á.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 2, 2008 17:54:53 GMT 1
Gott að hafa fjölhæfa leikmenn Vegna meiðsla fór markvörðurinn minn í skyttustöðuna og stóð sig vel í síðasta leik
|
|
|
Post by jonhelgi on Mar 4, 2008 19:29:50 GMT 1
Gott að hafa fjölhæfa leikmenn Vegna meiðsla fór markvörðurinn minn í skyttustöðuna og stóð sig vel í síðasta leik Næst besti markvörðurinn minn er venjulega skytta í mínum leikjum.
|
|
|
Post by jonhelgi on Mar 4, 2008 23:24:35 GMT 1
Úff ég var heppinn að vinna í kvöld, ég gleymdi að skipta út slösuðum leikmanni en varamaðurinn fyllti í skarðið en átti ekki góðann leik. Hinir leikmennirnir áttu flestir betri leik en vant er svo þetta slapp fyrir horn og annar sigurinn í deildinni staðreynd.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Mar 12, 2008 13:43:03 GMT 1
pfff! Annar merkilegur leikmaður meiddur. Ótrulegt!
|
|
|
Post by jonhelgi on Apr 29, 2008 19:41:59 GMT 1
Til hamingju blesar með að vinna deildina! Markmiðið hjá mér var að halda mér uppi og það tókst þó það stæði tæpar þegar upp var staðið en útlit var fyrir þegar nokkrar umferðir voru eftir. Kom mér á óvart að ná bara einu stigi í síðustu umferðinni en andstæðingarnir skoruðu 4 síðustu mörkin! Það virtist ekki vera mikil innistæða fyrir því. En liðið leiktímabil einkenndist af því að ég var oft með slasaða hornamenn en það var nánast eina staðan sem ég var í vandræðum með. Það gerist ekki næst því ég er að þjálfa hornamenn og sumir að þeim eru að sýna mjög góðar framfarir. Það sem var ánægjulegast fyrir mig var að Pascal Fast var markhæsti leikmaðurinn þrátt fyrir að vera í gæslu í mörgum leikjum á tímabilinu. Þá er hann búinn að ná þeim áfanga að vera bæði markakóngur í 2. og 1. deild það er bara nokkuð gott!
|
|
|
Post by noteboom on Apr 29, 2008 23:50:57 GMT 1
Já, til hamingju Blesi. Glæsilegur sigur, ekki síst þar sem að deildin virkar mun sterkari en áður. Það er, fleiri góð lið en oft áður að mér finnst. Ég vil einnig óska jonihelga til hamingju því það er ekki létt að halda sér uppi á fyrsta ári. Reyndar finnst mér það erfiðara hér en í mörgum öðrum leikjum. Og Pascal er snillingur, erfitt að stoppa kappann.
Sjálfur er ég að skríða upp en var þó að vonast eftir því að ná enn betri árangri. Erfið byrjun var að stríða mér og eitthvað sem ég verð að bæta næst!
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on May 6, 2008 23:40:15 GMT 1
Sælir drengir, ég er ánægður með mín fyrstu stig í lengri lengri tíma í efstu deild:D búinn að vera aðeins í hræringum á leimmanna markaðnum, búinn að fá ungar skyttur og unga hornamenn inní þetta hjá mér og kominn með 3nýja markmenn allir frekar efnilegir reyndar einn þeirra 27ára en með fínar tölur. Aftur á móti seldi ég einn gamlann pólverja 34ára og einn dana 31árs báðir skyttur sem voru að spila viðamikil hlutverk í mínu liði á síðasta ári. Þetta ár hjá mér verður strembið mjög held ég, verðugt verkefni að koma nýjum mönnum inní þetta, en jæja hvernig líst mönnum á þetta allt saman þetta tímabil?, blesarnir gerðuj afntefli í fyrsta leik heldur óvænt þykir mér.
|
|
|
Post by blesi on May 7, 2008 10:49:02 GMT 1
Ég vil byrja á að þakka ykkur fyrir hamingjuóskirnar, er afar sáttur með liðið tímabil, sérstaklega í ljósi þess að ég tók ungan strák inn í aðalliðið, sem er einmitt núna kominn í landsliðshópinn. Varðandi fyrsta leikinn á þessu tímabili, gegn Bart bk, þá kemur jafnteflið þar mér persónulega ekkert á óvart. Ég hef verið að eiga einna helst í basli með þá og er liðið afar sterkt, sem sést á því að við vorum með svipaða einkunn núna heilt yfir liðið. Auk þess var ég á útivelli. Ég stefni þó að sjálfsögðu að sigri í deildinni og reikna jafnvel með því að styrkja mig eitthvað á næstunni. Þarf svo að fara að taka svolítið til í hópnum.
En að öðru. Nú var eitthvað rugl í gangi með serverinn þannig að mér tókst að fá þrjá leikmenn upp úr unglingaliðinu, en voru þeir allir hundslappir. Svo virðist sem mér sé bara ekki ætlað að fá almennilega unga leikmenn upp þessa dagana.
|
|