fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Oct 1, 2007 3:58:25 GMT 1
|
|
|
Post by blesi on Oct 1, 2007 9:34:13 GMT 1
Heyrðu já, það hlaut að koma að því. Þetta er hins vegar annað tímabilið mitt í röð þar sem ég er í öðru sæti í deildinni. Verð greinilega að fara að taka mig á og stefna á sigur á næsta tímabili. En til hamingju með titilinn.
|
|
|
Post by jonhelgi on Oct 1, 2007 20:11:57 GMT 1
Loksins náði maður að taka titilinn. Til hamingju með það! Ég geri mér engar vonir fyrr en eftir þó nokkur tímabil.
|
|
|
Post by noteboom on Oct 2, 2007 14:36:48 GMT 1
Til hamingju með þetta.
Ég ætla að nálgast ykkur á næsta tímabili! Með 12 stig úr seinni umferðinni segir maður að þessar miklu breytingar sem maður gerði, seint á þar síðasta tímabili, eru að byrja að skila sér.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Oct 2, 2007 22:31:11 GMT 1
Takk fyrir það drengir.
Já ég held að það sé engin spurning að deildin sé að styrkjast þar sem fleiri lið eru farin að taka stig af toppliðunum. Þetta er orðið þannig að maður er ekki orðinn öruggur með stig í flestum útileikjum.
|
|
|
Loksins
Oct 26, 2007 21:51:22 GMT 1
Post by jonhelgi on Oct 26, 2007 21:51:22 GMT 1
Er þetta spjall að deyja eða hvað? :S
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Loksins
Oct 26, 2007 23:00:11 GMT 1
Post by fattila on Oct 26, 2007 23:00:11 GMT 1
Við látum það ekki gerast, úr því það er loksins komið í gang.
Annars lýst mér ekkert á Blesana þetta tímabilið. Það lýtur út fyrir að þeir ætli sér titilinn í ár. Ég bíð hinsvegar eftir endurkomu markamaskínunar Skarphéðins Georgs, Misfits verða ekki svipur hjá sjón fyrr en hann kemur úr meiðslunum.
|
|
|
Post by blesi on Oct 27, 2007 2:32:08 GMT 1
Neinei, þetta má ekki lognast út af.
Það er alveg klárt að ég ætla mér titilinn í ár og var keypt svolítið inn í samræmi við það. Eins og fyrr er það helst markvarðarstaðan sem er hausverkurinn hjá mér. Ég er þó búinn að kaupa mér nokkuð ungan leikmann með hátt í markvörslu og ætti hann að verða orðinn aðalmarkvörður á næsta tímabili. Þá getur líka Róbert Thors loks farið að spila í skyttustöðunni, en hann er með miklu betri tölur í þá stöðu.
Djöfull er svo fínt að sjá að Skarphéðinn Georgs er að koma til baka úr meiðslunum og að hann verður klár í slaginn á móti mér eftir viku. Sá leikur gæti orðið þrælspennandi og er vonandi að bæði lið geti stillt upp sínum bestu liðum.
P.S. noteboom: ertu ekki enn að þjálfa hornamenn? Þessir tveir tvítuga líta svo þrælvel út.
Úff, djöfull get ég skrifað...
|
|
|
Loksins
Oct 28, 2007 23:58:49 GMT 1
Post by jonhelgi on Oct 28, 2007 23:58:49 GMT 1
Feginn að sjá að það er líf hérna. Verst að ég er ekkert inn í leikmannamálum í 1. deildinni því ég veit ekkert um hverja þið eruð að tala! Það er smá möguleiki að ég gæti kíkt upp í deildina til ykkar eftir þetta leiktímabil en það er þó of snemmt að segja til um það. En mér líst ekki illa á tímabilið það sem búið er af því.
|
|
|
Loksins
Oct 29, 2007 18:35:35 GMT 1
Post by noteboom on Oct 29, 2007 18:35:35 GMT 1
Jú, ég er að þjálfa hornamennina á fullu og mun gera út þetta og jafnvel næsta tímabil! Skarphéðinn Guðmundsson mun verða sérstaklega sterkur. Hins vegar er byrjunin svo slök að það er ljóst að ég geri engar rósir á þessu tímabili Ætlaði að fikra mig ofar en byrjunin er þannig að ég hef ákveðið að vera rólegur á þessu tímabili og vonandi næ ég góðum kaupum til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. Er með ungt lið í heildina og það mun bara verða betra. Þarf að halda mér uppi og allt annað verður bónus.
|
|
|
Post by blesi on Oct 31, 2007 1:59:56 GMT 1
Magnað að heyra. Já ég bind miklar vonir við Skarphéðinn og eins lítur Sigurjón nokkuð vel út. Ég tala nú ekki um ef þeir fá fulla þjálfun í einhvern tíma.
Þú ert líka með helvíti jafnt lið sem mér hefur nú alltaf þótt gott til að byggja á. Tel það nú alls ekki ólíklegt að þú haldir þér uppi.
|
|
|
Post by noteboom on Nov 1, 2007 18:16:18 GMT 1
Sammála þér með að byggja jafnt upp. Hefur verið markviss stefna og ég hef þjálfað all nema markverði.
'Eg á að halda mér uppi en sú stefna að pressa á hærri sæti er ekki raunhæf. Næ vonandi að styrkja liðið vel fyrir næsta tímabil og koma sterkur þar inn.
|
|