|
Post by blesi on Jan 17, 2008 17:54:52 GMT 1
Takk fyrir stuðninginn piltar.
|
|
|
Post by noteboom on Jan 17, 2008 22:46:06 GMT 1
Upp með nefið. Þetta tekur tíma og menn verða að vera þolinmóðir og menn eru það hér!
Tökum þau stig sem við getum og svo skoðum við stöðuna! En þú ert að standa þig vel.
|
|
|
Post by blesi on Jan 19, 2008 14:37:40 GMT 1
Jájá, við stöndum keikir. Ísraelar unnust nokkuð sannfærandi sem er mjög gott. Næsti leikur ætti líka að vinnast, þrátt fyrir að Erlendur Indriðason hafi meiðst, sem er nokkuð áfall fyrir liðið. Ég hef ákveðið að henda Skarphéðni Georgssyni í stöðu hans, enda hefur hann alltaf skilað sínu.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 20, 2008 13:01:06 GMT 1
Maður kemur í manns stað.
|
|
|
Post by blesi on Mar 16, 2008 21:03:00 GMT 1
Jæja, þá er aftur komið að kosningum um landsliðsþjálfara. Ég hef ákveðið að gefa ekki aftur kost á mér í þetta skiptið, fyrst og fremst vegna þess að ég hef takmarkaðan tíma til að sinna liðinu á næstunni. Ég mun styðja hvorn sem er, Jón Helga eða Noteboom ef þeir bjóða sig fram og tel að báðir myndu standa sig með stakri prýði.
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Mar 17, 2008 10:25:14 GMT 1
My vote goes to someone that plays in Iceland, that for sure, Noteboom, Einfarinn, Fattila or jonhelgi.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 17, 2008 15:14:15 GMT 1
Takk fyrir það báðir tveir, að lýsa yfir stuðningi.
Hvað segir þú, jonhelgi? Líst vel á þig sem landsliðsþjálfara. Hins vegar ef þú ferð ekki fram, ekki skoða þetta sem vantraust á neinn en málið er að ég hef mikla trú á jonihelga, mun ég skoða það mjög alvarlega.
Ef ég fer fram hef ég velt því fyrir mér hvort rétt sé að byggja það upp á mjög ungum mönnum, undir 25 ára. Það þarf alltaf einn og einn reyndari með, sérstaklega í markið því þar eru fáir. En þó að þetta myndi kosta slakari árangur til að byrja með værum við að byggja upp sterkt lið til framtíðar. 'Eg, Blesi, Akranes Misfit og jimmyfloyd amk, jafnvel fleiri, eru allir að byggja upp nýtt lið og með unga stráka. Þess vegna var ég að velta þessu fyrir mér, tíminn einfaldlega góður fyrir þetta. Hugsanlega skipti ég um skoðun og myndi keyra á besta liðinu, veit það ekki! En þetta er alla vegana pæling.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Mar 17, 2008 16:15:46 GMT 1
sammála síðasta ræðumanni með að keyra liðið á ungum mönnum, ég hef valið hina leiðina í mínu liði, ég er með eldri og virkilega góða leikmenn, en það kostar sitt, þarf vissulega að fara byggja upp en svona er þetta manni vill til að vilja skjótan árangur:D
|
|
|
Post by blesi on Mar 17, 2008 20:18:41 GMT 1
Það er kannski rétt að ég taki það fram að ég var alls ekki að lýsa yfir vantrausti á aðra, tel Noteboom og jonhelga einfaldlega öfluga stjóra sem hafa verið virkir hér inni sem og ég veit til þess að þeir eru báðir afar virkir í Hattrick og tíðir gestir á spjallborðinu þar. jonhelgi er ekki að gefa kost á sér eins og er svo ég hef kosið Noteboom.
Jú ég er alveg sammála því að það má yngja nokkuð upp í liðinu, ekki síst vegna þess einfaldlega að við eigum orðið slatta af frambærilegum leikmönnum á góðum aldri.
Ég er búinn að vera að leyfa yngri strákum að spreyta sig sbr. Skarphéðinn Guðmundsson og leikstjórnandinn minn Hlynur Thor, ekki amalegt að hafa þannig mann sem back up fyrir Ragnar Alexanders.
Gaman er svo að segja frá því að aðalmarkvörðurinn okkar er á fínasta aldri, 26 ára, og svo er leikmaður sem ég púllaði, Hlynur Eysteinsson, að því er ég held ennþá í fullri þjálfun, en hann er 21 árs. Vandamálið hjá okkur er hins vegar það að við eigum heilan helling að sæmilegum leikmönnum, á milli 25.000 og 35.000 í TSI, en mun færri virkilega öfluga. Þetta er samt allt að koma til með framtaki stjóra eins og einmitt þín Noteboom. Það er ekki síst þess vegna vil ég endilega sjá þig taka við liðinu.
Afsakið þessa langloku, ég virðist hafa verið í rosalegri þörf til að tjá mig. Að lokum má kannski geta þess að ég er til í að vera verðandi þjálfara innan handa, þó að það sé reyndar búið að setja system-ið þannig upp að það er orðið afar auðvelt að finna leikmenn í liðið og fylgjast með þeim. Já og takk fyrir mig.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 17, 2008 20:39:15 GMT 1
Takk fyrir það og virkilega góð störf fyrir liðið. 'Eg hef ákveðið í ljósi þessa að gefa kost á mér. Gott að eiga þig að ef ég verð kosinn, mun örugglega nýta mér það.
'Eg hef einnig orðið reynslu af landsliðsþjálfarastöðu því að ég hef verið að byggja upp landslið Dana í hreint frábærum körfuboltaleik, basketsim. Sú reynsla ætti að nýtast mér vel í þessum leik. Treysti mér til að vera á báðum stöðum og svo er auðvitað 'Island númer 1,2 og 3 hjá mér að sjálfsögðu!
Hvenær byrjar næsta WC, manstu það? Minnir nefnilega að það sé fullt af æfingarleikjum hér á undan móti sem er mikill kostur.
'Eg hef ekki ákveðið neitt en finnst líklegt að maður reyndi að byggja upp nýtt lið byggt á ungum og efnilegum sem stílaði meira á að ná árangri í þar næstu keppni. En auðvitað myndi ég nýta mér menn á besta aldri eins og Ragnar og nokkra aðra sterka leikmenn.
Menn geta alla vegana treyst því að ég mun gera mitt besta!
ps. Hvaða lið ertu í HT Blesi?
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Mar 17, 2008 21:52:02 GMT 1
Það væri snídugt að búa til gagnasafn (database?) til að hafa bestir islendingar leikmenn. Ef þið viljið ég get að búa til heimasíðuna landliðsins. Ég hef tími núna.
|
|
|
Post by blesi on Mar 17, 2008 22:23:55 GMT 1
Jú, það ætti að vera slatti af æfingaleikjum fyrir næsta HM. Reyndar er leikjauppröðunin búin að vera afar undarleg að undanförnu og þannig gat ég t.d. ekki séð leikjaáætlunina eftir síðasta HM, þrátt fyrir að það væri verið að spila vináttuleiki. Það lagast vonandi á næstunni.
Database er ég ekkert viss um að þurfi endilega að byggja á þessum tímapunkti vegna þess hvernig þetta er allt sett upp. Það er sumsé þannig að hægt er að leita að leikmönnum eftir TSI og þannig fær maður nokkuð gott yfirlit yfir leikmenn. Auk þess getur landsliðsþjálfari bookmark-að fjölda leikmanna. Þrátt fyrir það er þetta alls ekki slæm hugmynd og ef þú værir til í að koma slíkum upp væri það auðvitað bara kostur jimmyfloyd.
Ég hlakka svo bara virkilega til að fylgjast með landsliðinu á næstunni þar sem nýtilkomnar varnarstillingar gefa möguleika á að opna leikinn aðeins (þó kannski engan helling) fyrir lið eins og okkar.
P.S. Liðið mitt í HT heitir nesiblesi og er ég enn að lulla í deild IV.2. Ætti í raun að vera búinn að koma mér upp úr henni og stefni á að gera það ekki síðar en á næsta tímabili.
|
|
|
Post by noteboom on Mar 18, 2008 12:03:32 GMT 1
Það væri gaman að því að hafa heimasíðu.
Sammála Blesa varðandi gagnagrunninn (database). Fínt að hafa en ekki nauðsyn eins og er.
Hef aðeins skoðað síðustu leiki, mér finnst það spennandi hugmynd að taka sénsinn á að byggja upp lið á kostnað næstu keppni en gæti hins vegar skilað sér í þar næstu. Þarf allt af eitthvað af eldri með en við eigum skemmtilega leikmenn frá 27 ára og niður (kannski fleiri örlítið eldri, hef ekki skoðað það nægilega vel). Hvernig er það, skiptir máli hvar menn lenda í riðlunum í WC upp á styrkleikaröðun í næstu keppni?
|
|
|
Post by blesi on Mar 18, 2008 15:06:32 GMT 1
Tja, eiginlega bæði og. Landsliðin fá stig (rank points) eins og félagsliðin, eftir frammistöðu. Þannig borgar það sig að ná góðum árangri, en lokastaðan í riðlunum held ég að hafi ekki bein áhrif á styrkleikaröðun. Þó er margt af þessu svolítið óljóst. Svo eru klár kynslóðaskipti að eiga sér stað hjá landsliðinu og finnst mér engin spurning um að við ættum að rúlla með því.
|
|
|
Post by jonhelgi on Mar 20, 2008 0:14:25 GMT 1
Eins og einhverjir athugulir hafa tekið eftir þá er ég ekki í framboði til landsliðsþjálfara. Ég þakka samt traustið sem þið hafið sýnt mér. Ég hef kosið Noteboom enda veit ég að hann er alveg fullvaxinn í starfið! Ég sé ekki að mitt atkvæði hafi bæst við, er það eitthvað til að hafa áhyggjur af?
|
|