|
Post by noteboom on Dec 3, 2007 17:31:27 GMT 1
Ég datt í lukkupottinn Fékk ótrúlegt efni í heimsklassahornamann!!! Skapandi: 11 Hraði: 10 Vinna án bolta: 24 Og hann er aðeins 17 ára!!! Svo að ég mun taka þá áhættu að fórna sæti fyrir hann. Hann fær allan þann tíma sem hann þarf þrátt fyrir að mikinn klaufaskap hjá mér þegar ég kom mér ekki úr botnbaráttunni áður en ég fór að breyta liðinu!
|
|
|
Post by blesi on Dec 3, 2007 19:09:43 GMT 1
Niiice. Klárlega efni í stjörnu. Ég einmitt er alveg hættur að fá góð púll. Hið síðasta virkilega góða var örugglega á síðustu leiktíð. Ég kætist þó að sjá að það er leið á klassa hornamönnum í landsliðið, fyrst kemur Skarphéðinn og svo þessi. Svo er ég með tvítugan leikstjórnanda sem er farinn að banka á dyrnar og í það minnsta eina skyttu.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 3, 2007 20:27:39 GMT 1
Ég datt í lukkupottinn Fékk ótrúlegt efni í heimsklassahornamann!!! Skapandi: 11 Hraði: 10 Vinna án bolta: 24 Og hann er aðeins 17 ára!!! Svo að ég mun taka þá áhættu að fórna sæti fyrir hann. Hann fær allan þann tíma sem hann þarf þrátt fyrir að mikinn klaufaskap hjá mér þegar ég kom mér ekki úr botnbaráttunni áður en ég fór að breyta liðinu! Ansi flottur þessi ég vona að ég geti púllað svona einhvern tímann!
|
|
|
Post by blesi on Dec 18, 2007 14:21:50 GMT 1
Svo ég haldi áfram að láta menn vita af þróun mála þá vorum við að spila leik í gær, eða...hann reyndar kom ekkert inn fyrr en í dag, en er skráður á í gær. Þar unnum við Argentínumenn á útivelli og er það auðvitað jákvætt. Við vorum miklu miklu betri aðilinn í leiknum þannig að sigurinn var verðskuldaður og hefði alveg mátt vera stærri. Einnig voru tiltölulega ungir menn að spila þannig að þetta gefur mér ágætis upplýsingar um stöðu manna. Neikvæðasti punkturinn er sennilega vítanýtingin en Jóhann skoraði einungis úr einu víti í leiknum. Það er svo sem kannski ekki að undra þar sem við eigum einfaldlega ekki menn sem geta eitthvað í vítum. Í næstu leikjum munu yngri menn örugglega spila enn stærri hlutverk þar sem ég vil gefa mönnum sénsinn og prófa mig áfram með uppstillingar. Segjum þetta gott í bili. Ég held svo áfram að láta vita í kringum þessa vináttuleiki sem eru á dagskrá, en við munum m.a. spila á móti sterkum þjóðverjum og króötum á næstunni.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 18, 2007 20:23:45 GMT 1
Ég er ekki að fylgjast með landsleikjunum þannig að það er bráðnauðsynlegt fyrir mig að þú gefir skýrslur um gang mála.
|
|
|
Post by blesi on Dec 25, 2007 21:58:52 GMT 1
Þá er best að ég haldi því áfram. Tveir vináttuleikir búnir og spiluðum við fyrst við Tékka. Þar vannst mjög góður sigur og er eiginlega fátt annað um þann leik að segja. Svo á aðfangadag spiluðun við á móti sterkum Króötum á heimavelli og var tap eitthvað sem kom sjálfsagt engum á óvart. Liðið var nokkuð slakt heilt yfir, enda verið að halda mönnum frá jólahaldi og mórallinn því auðvitað ekki góður. Ég enda þetta svo á því að óska ykkur öllum gleðilegra jóla, þakka keppnina á árinu og hlakka til enn frekari keppni á því nýja.
|
|
|
Post by noteboom on Jan 5, 2008 23:35:34 GMT 1
Riðillinn klár.
Hvað er takmarkið, topp 3? Þýskaland með hörkulið og slovenar líklega líka en er Mexicó eitthvað sérstakt?
Held að við séum sterkari en Ísraelar, ekki satt, en man ekki hvað 6 liðið er. Allavegana, þetta er ekki sett fram til að búa til pressu heldur hvatning með umræðu fyrir spennandi riðil. Gangi þér vel.
Ps. Líklega veistu það en alla vegana hef ég fundið rosalegan mun á að nota markmann með góða sendingargetu. Hornamenn mínir skora áberandi meira þegar ég nota slíka markmann miðað við þegar ég nota hann ekki. Hef enga ástæðu til að ætla það að það sé öðruvísi í öðrum liðum!
|
|
|
Post by blesi on Jan 6, 2008 18:12:48 GMT 1
Sælir. Já ég ætlaði nú að vera löngu búinn að skrifa inn póst hérna þar sem riðlarnir eru klárir. Því miður er ég hræddur um að 3. sætið sé varla raunhæfur möguleiki. Mexíkó eru einfaldlega miklu mun betur mannaðir en við og með alveg rooosalegan markvörð í Don Olalas. Sá er aðeins 25 ára en þegar kominn upp í 73.080 í TSI. Leikurinn er svo enn þannig upp settur að lítið er hægt að gera varðandi taktík til að vinna gegn viðlíka mun og er á liðunum okkar. Ég mun þó að sjálfsögðu reyna og geri mitt albesta til að hreppa 3. sætið. Slóvenar eru svo ekki mjög ósvipaðir Mexíkó að styrkleika og eru þetta því tvö lið sem er alveg séns að stríða eitthvað. Sigrar gegn Bosníu og Ísrael eru algjör skylda og yrðu önnur úrslit stórkostlegt áfall.
Hvað markvarðarmálin varðar þá er Björn Thorsteinsson einmitt með fína sendingagetu en hann er eiginlega eini almennilegi markvörðurinn okkar. Gunnlaugar Geirsson er hinn markvörðurinn í hópnum og er hann ekki með neina sendingagetu. Leikmaður minn, Robert Thorsson, spilaði reyndar í markinu hjá mér fram að þessu tímabili og er með ágætis tölur í fótavinnu og sendingum. Hann er því alveg möguleiki.
|
|
|
Post by noteboom on Jan 7, 2008 11:23:57 GMT 1
Gott að fá þessar upplýsingar. Gangi þér vel. Var að fá enn eitt efnið. Þyrfti eiginlega að geta þjálfað línu með hornunum Unglingadeildin er kominn, loksins, í 100 af 100. Mun vonandi skila góðu. Hef td efnilegan línumann sem nýtist í a liðið þó ég sé ekki að þjálfa hann sem slíkan.
|
|
|
Post by blesi on Jan 7, 2008 13:06:04 GMT 1
Takk fyrir það. Límumennirnir fá væntanlega einhverja þjálfun ef þú ert að þjálfa hornamenn þar sem þú ert væntanlega að þjálfa þá í hraða og án bolta. Auðvitað fá þeir ekki fulla þjálfun en samt...ef þeir eru með hátt í skapandi ættu þeir að geta orðið helvíti fínir.
|
|
|
Post by noteboom on Jan 8, 2008 11:56:50 GMT 1
Það er rétt að þeir fá þjálfun í að vinna án bolta (auk hraðaþjálfunarinnar). Vandin er hins vegar sá að þeir fá ekki skapandi þjálfun. Báðir eru þessi varamenn fyrir línuna komu fyrir stuttu upp úr unglingastarfinu. En þeir eru með (komu með réttara sagt) yfir 20 án bolta en vantar skapandi til að fylgja því eftir. Yrðu flottir línumenn með skapandi þjálfun en ég held mig við þjálfun hornamanna næstu tímabil.
|
|
|
Post by blesi on Jan 11, 2008 23:42:37 GMT 1
Jæja. Þá er fyrsti leikur mótsins búinn og var það tap gegn slóveníu. Ef þið skoðið leikinn sjáið þið að þetta eru ekki óeðlileg úrslit þar sem þeir voru með betri menn í öllum stöðum. Fimm marka tap er því ekki svo slæm úrslit, þannig lagað. Næsti leikur er gegn Mexíkó og ætla ég mér sigur í þeim leik. Þeir hafa að vísu all rosalegan markvörð og á góðu liði að skipa en ég er ekki frá því að við gætum lagt þá. Eftir það koma svo tveir leikir sem við ættum að vinna og að lokum eru það hinir gríðarsterku þjóðverjar sem við mætum.
Ég vil vekja athygli á því að einungis 3 leikmenn voru í liðinu í dag sem spila með íslenskum liðum, þar af 2 af mínum mönnum. jimmyflood er svo að standa sig vel í því að þjálfa næsta leikstjórnanda liðsins. Eins geri ég mér grein fyrir því að einhverjir eru að fókusera á það að þjálfa upp framtíðarstjörnur í ákveðnum stöðum, sbr. Noteboom með sína gríðarlega efnilegu hornamenn. Ég vil hvetja þá sem lesa þetta að huga að slíku, þar sem landsliðið okkar verður tæplega samkeppnishæft eins og staðan er í dag.
Margir af okkar landsliðsmönnum eru alls ekki að fá þjálfun í sínum stöðum, þar sem eigendum þeirra stendur ekki hagur af því. Jæja, vildi bara nefna þetta svo menn hugsi aðeins um það. Hafið það gott.
|
|
|
Post by blesi on Jan 17, 2008 0:14:12 GMT 1
Jæja. Þá er annað tapið staðreynd. Mexíkóar voru einfaldlega of stór biti fyrir okkur og voru þeir betri í öllum stöðum, ef frá er skilin önnur skyttustaðan. Tveggja marka tap er þannig kannski ekki slæm niðurstaða. Við taka tveir leikir sem ættu að vinnast og yrði allt annað mikil vonbrigði.
|
|
|
Post by jonhelgi on Jan 17, 2008 0:21:37 GMT 1
Gangi okkur bara betur næst!
|
|
jimmyfloyd
Assistent Coach
CB Calpisa (Iceland) - Div. 1
Posts: 66
|
Post by jimmyfloyd on Jan 17, 2008 14:31:34 GMT 1
Good luck!
|
|