|
Post by noteboom on Dec 8, 2007 23:09:32 GMT 1
Takk fyrir það og til hamingju sjálfur, þetta er góður sigur hjá þér og til að byggja ofan á. Sterkt Blesi að enda með sigri, til hamingju. Aðalmálið hjá mér var að halda mér uppi. Hefði samt viljað vinna síðasta verandi yfir þegar 5 mínútur voru eftir! Skarphéðinn 3 markahæsti, hækkar vonandi á þeim lista á næsta tímabili! En vil byggja áfram upp jafnt lið, sjáum til hvernig það gengur
|
|
|
Post by blesi on Dec 9, 2007 0:59:21 GMT 1
Já þetta fór heldur betur vel hjá okkur þremur. Til hamingju báðir. Til hamingju með góðan sigur jonhelgi (ég vissi það, aldrei spurning) og markahæsta mann deildarinnar. Skil alveg gremjuna Noteboom en það er nú mikilvægast að þér tókst að halda þér uppi og liðið þitt á bara eftir að styrkjast.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 9, 2007 13:02:52 GMT 1
Já þetta fór heldur betur vel hjá okkur þremur. Til hamingju báðir. Til hamingju með góðan sigur jonhelgi (ég vissi það, aldrei spurning) og markahæsta mann deildarinnar. Skil alveg gremjuna Noteboom en það er nú mikilvægast að þér tókst að halda þér uppi og liðið þitt á bara eftir að styrkjast. Takk það var sætt að fá marhæsta leikmanninn og vinna síðustu tvo leikina gegn liðum sem hafa verið að narta í hælana á manni meirihlutann af leiktíðinni.
|
|
fattila
Junior Coach
Manager of Akranes Misfits Div 1
Posts: 16
|
Post by fattila on Dec 9, 2007 19:30:47 GMT 1
Já til hamingju með sigurinn Blesi. Nú er hafin uppbygging hjá Misfits þannig að maður keppir kannski ekki um titilinn næstu 2 árin. Hvað varðar markakóngs titilinn þá á Skarpi G hann með húð og hári. Enda orðinn 6. markahæsti maður leiksins frá upphafi
|
|
|
Post by blesi on Dec 11, 2007 22:56:43 GMT 1
Æi það er ágætt að heyra, þar sem ég er að selja Felix Fogh Moya og ætla í staðinn að henda ungu strákunum inn í aðalliðið, enda kemur það landsliðinu til góða.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 18, 2007 20:26:05 GMT 1
Jæja sigur í höfn hjá mér í fyrsta leik tímabilsins á útivelli gegn einu af sterkustu liðunum. Mjög sáttur!
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Dec 20, 2007 4:09:42 GMT 1
Sælir drengir gaman að sjá að það eru einhverjir fleiri handbolta nördar að spila þennan leik hér á landi, ég er búinn að vera í þessum leik slatta tíma en ekki af einhverju viti, flestir mínir leikmenn eru slakir og ég hef ekki nennt að gera neitt í því og aldrei almennilega komið mér inní leikinn, en núna ætla ég aðeins að byrja að "stunda" þetta og reyna að gera eitthvað að viti er búinn að styrkja lið mitt töluvert og var að enda við að kaupa 3nokkuð sterka leikmenn þar á meðal einn markmann, ég er fjandi spenntur að sjá hvernig þeir munu koma inní þetta. Ég keypti á sínum tíma spænskan leikmann Augusto Milanese sem var t.d markahæstur eitthvað tímabilið og alltaf verið í toppnum á markalistanum en hann er orðinn fjandi gamall 37ára þannig að ég færði hann niðrí horn og setti ferskari mann í skyttuna, en Augusto hefur gjörsamlega skitið á sig í horninu þannig að ég setti hann á bekkinn núna og keypti Jörg Leipzig sem ég bind miklar vonir við. Kanski soldið löng innkoma hérna á spjallið, en gaman var að tjá sig aðeins. hilsen. Haukar.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 20, 2007 21:50:01 GMT 1
Sælir drengir gaman að sjá að það eru einhverjir fleiri handbolta nördar að spila þennan leik hér á landi, ég er búinn að vera í þessum leik slatta tíma en ekki af einhverju viti, flestir mínir leikmenn eru slakir og ég hef ekki nennt að gera neitt í því og aldrei almennilega komið mér inní leikinn, en núna ætla ég aðeins að byrja að "stunda" þetta og reyna að gera eitthvað að viti er búinn að styrkja lið mitt töluvert og var að enda við að kaupa 3nokkuð sterka leikmenn þar á meðal einn markmann, ég er fjandi spenntur að sjá hvernig þeir munu koma inní þetta. Ég keypti á sínum tíma spænskan leikmann Augusto Milanese sem var t.d markahæstur eitthvað tímabilið og alltaf verið í toppnum á markalistanum en hann er orðinn fjandi gamall 37ára þannig að ég færði hann niðrí horn og setti ferskari mann í skyttuna, en Augusto hefur gjörsamlega skitið á sig í horninu þannig að ég setti hann á bekkinn núna og keypti Jörg Leipzig sem ég bind miklar vonir við. Kanski soldið löng innkoma hérna á spjallið, en gaman var að tjá sig aðeins. hilsen. Haukar. Gaman að sjá að það eru fleiri en ég á lífi í riðlinum mínum.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Dec 23, 2007 18:32:08 GMT 1
Sælir, ég er ánægður með með minn síðasta leik, nokkrir leikmenn voru að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið og stóðu sig gríðarlega vel og fengu einkun uppá tölur sem ég hef varla séð í mínu liði áður. nýr þýskur hornamaður skoraði 9 mörk fyrir mig á 30min en meiddist síðan illa þannig að hann verður lengi frá. Haukar eru á toppnum núna með Hc Reykjavík, þetta verður forvitnilegt tímabil þar sem ég mun reyna mitt besta til að koma mínum mönnum upp um deild.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 23, 2007 22:50:32 GMT 1
Sælir, ég er ánægður með með minn síðasta leik, nokkrir leikmenn voru að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið og stóðu sig gríðarlega vel og fengu einkun uppá tölur sem ég hef varla séð í mínu liði áður. nýr þýskur hornamaður skoraði 9 mörk fyrir mig á 30min en meiddist síðan illa þannig að hann verður lengi frá. Haukar eru á toppnum núna með Hc Reykjavík, þetta verður forvitnilegt tímabil þar sem ég mun reyna mitt besta til að koma mínum mönnum upp um deild. Ég tók einmitt eftir því að einn af nýju leikmönnunum þínum slasaðist illa. En þú vannst frekar sannfærandi sigur gegn því liði sem átti sennilega að vera sterkasta liðið í riðlinum þannig að þú mátt vel við una. Mitt lið er búið að vinna tvo útisigra í röð gegn alvöru liðum svo útlitið er gott.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 25, 2007 10:58:05 GMT 1
Gleðileg jól allir saman.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Dec 26, 2007 19:29:17 GMT 1
Já Gleðileg jól. Nú er maður efstur ásamt HC Reykjavík og við eigum báðir "Bot" lið næst þannig að staðan mun að 99% líkindum ekki breytast, bara spurning með markatölu. Ég sigraði Team Gilf í síðasta leik en er í vandræðum með hægra hornið hjá mér var að beita skyttu þar núna í síðasta leik, hann skilaði reyndar 4mörkum en slakri einkun. Þetta verður barátta milli Hauka og Hc Reykjavík sennilega um að komast upp, bara spennandi að sjá hvernig þetta fer allt.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 26, 2007 23:18:51 GMT 1
Ég á alveg von á því að tapa stigum í baráttunni og reikna fastlega með því að fara ekki upp. En maður reynir samt þó maður sé engan veginn tilbúinn í 1. deild.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Dec 28, 2007 17:53:42 GMT 1
já það er allveg rétt, en ég held að við séum með svipuð lið að styrkleika, ef ég kemst upp þá þarf ég að styrkja hópinn einhvern slatta, en eins og staðan er í dag á ég ekki mikinn pening en fæ þó eitthvað af aurum eftir hvern leik þar sem ég er með nokkuð stórann völl, reyndar mun ég styrkjast mikið þegar hægri hornamaðurinn minn frá þýskalandi kemur úr meiðslum, eini leikurinn hans til þessa setti hann 9mörk á 30 min þannig að hann virðist geta skorað mikið. Hlakka til.
|
|
haukar
Junior Handball Manager
Haukar- iceland - 2A
Posts: 29
|
Post by haukar on Jan 9, 2008 0:16:57 GMT 1
Jæja uppgjör toppliðanna lokið í fyrri umferð, það er farið að halla verulega undan fæti hjá mér og Hauka liðinu mínu, HC Reykjavík sigraði leikinn með einu marki í verulega jöfnum leik, ég er verulega svektur en það er nú ennþá helmingur eftir af mótinu. HC RVK hafa sigrað alla sína leiki og eru verðugir þarna á toppnum ungt og efnilegt lið meðan Haukarnir eru með lið svona í eldra horninu sem er jafnvel ekki að falla með þeim. En við sjáum til í seinni umferðinni, bara gaman að þessu.
|
|