|
Post by jonhelgi on Sept 15, 2007 17:00:55 GMT 1
Við verðum ekki með í toppbarátunni fyrr en við eigum heimsklassa leikmenn. Þannig að ef ég slysast til að "púlla" góðan ungling þá er ekkert mál fyrir mig að haga minni þjálfun að því að gera hann hæfan í landsliðið.
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 17, 2007 22:05:28 GMT 1
ég var að "púlla" þennan markvörð: Aldur: 17 Verðgildi: 2 480 Markvarsla: 5 Fótavinna: 9 Sendingar: 11 Skapandi: 1 Hraði: 1 Vinna án bolta: - Vítaskot: 2 Reynsla: -
þó hann sé 17 ára er hann ekki bara ruslatunnumatur?
|
|
|
Post by noteboom on Sept 18, 2007 8:59:29 GMT 1
Að mínum dómi er hann það.
|
|
|
Post by blesi on Sept 18, 2007 15:32:09 GMT 1
Tja, sem markvörður er hann augljóslega gagnslaus, en ef hann væri þjálfaður sem skytta gæti hann alveg selst á smá pening eftir einhvern tíma. Gætir þess vegna leyft honum að spila æfingaleiki sem hornamaður eða eitthvað og þannig hækkað tölurnar hans aðeins. En um leið og hann er kominn með yfir 10 í helstu tölunum fyrir stöðu er hægt að fá einhvern pening fyrir hann.
|
|
|
Post by noteboom on Sept 18, 2007 16:49:23 GMT 1
Það er rétt. Sorry, var of mikið að horfa á markmannsþættina.
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 18, 2007 19:00:32 GMT 1
já ég gef honum einhvern séns til að bæta sig og reyni svo að selja hann.
|
|
|
Post by jonhelgi on Sept 18, 2007 19:30:50 GMT 1
talandi um að gera markvörð að skyttu ég keypti fyrir nokkrum vikum leikmann sem mér fannst vera efnileg skytta fyrir lítið fé. ég komst að því eftir að ég keypti hann að upphaflega hefur hann verið púllaður sem markvörður en hann er núna besta skyttan í liðinu!
|
|
|
Post by jonhelgi on Oct 1, 2007 23:55:23 GMT 1
Válogatott. Hvað ætli það þýði? Þetta er fyrirsögn á einum þræðinum í Ungverska spjallinu.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 4, 2007 22:19:38 GMT 1
Ég á ágætis möguleika á öðru sæti í mínum riðli eftir að hafa sigrað annan af helstu keppinautunum á mínum heimavelli. En ég þarf að heimsækja hinn keppinautinn um helgina. Jafntefli dugar mér en það er ekki líklegt að ég nái því enda náði það lið jafntefli við efsta liðið á heimavelli en ég tapaði á heimavelli gegn efsta liðinu (að vísu með eins marks mun). En sá sögulegi atburður gerðist í leiknum í kvöld að nafni minn Jon Auken varð fyrsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að fá rautt spjald fyrir 3 brottvísanir! Til hamingju með það nafni! En eitt er nánast alveg pottþétt, ég verð með markhæsta leikmanninn í riðlinum í lok móts.
|
|
|
Post by blesi on Dec 4, 2007 23:26:39 GMT 1
Haha, já, ég man nú bara ekki eftir því að hafa séð menn fá rautt spjald fyrir 3 brottvísanir. Ef maður horfir nú bara á leikmennina ykkar þá virðist mér þú nú alveg eiga séns á því að fá eitthvað út úr þessum síðasta leik. Svo mættir þú jafnvel hvíla bestu menn aðeins minna og þá er aldrei að vita hvernig sá leikur fer. Maður virðist svo reyndar þurfa talsvert mikla yfirburði til að vinna á útivelli, oftast. Það er svo auðvitað glæsilegt að þú skulir eiga markahæsta manninn þar sem það er peningur í því. Mér virðist ekki takast að eiga markahæsta manninn og virðist þar um að kenna tiltölulega jöfnu liði mínu.
Annars virðist allt vera að skýrast í 1. deildinni og sýnist mér ég þess vegna mega tapa fyrir Akranes Misfits í síðasta leiknum, svo framarlega sem það sé ekki með 50+ marka mun, en hirða samt titilinn. Svo sýnist mér sem hinn ágæti stjóri Noteboom takist að halda sér uppi þar sem Domo*Kun* hafa misst stjóra sinn og teamb ættu að vinna þá í lokaleiknum. Þar með þyrftu skytturnar ekki endilega að vinna leik sinn gegn Glæsi Akranes til að halda sér uppi.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 5, 2007 20:08:11 GMT 1
Haha, já, ég man nú bara ekki eftir því að hafa séð menn fá rautt spjald fyrir 3 brottvísanir. Ef maður horfir nú bara á leikmennina ykkar þá virðist mér þú nú alveg eiga séns á því að fá eitthvað út úr þessum síðasta leik. Svo mættir þú jafnvel hvíla bestu menn aðeins minna og þá er aldrei að vita hvernig sá leikur fer. Maður virðist svo reyndar þurfa talsvert mikla yfirburði til að vinna á útivelli, oftast. Það er svo auðvitað glæsilegt að þú skulir eiga markahæsta manninn þar sem það er peningur í því. Mér virðist ekki takast að eiga markahæsta manninn og virðist þar um að kenna tiltölulega jöfnu liði mínu. Annars virðist allt vera að skýrast í 1. deildinni og sýnist mér ég þess vegna mega tapa fyrir Akranes Misfits í síðasta leiknum, svo framarlega sem það sé ekki með 50+ marka mun, en hirða samt titilinn. Svo sýnist mér sem hinn ágæti stjóri Noteboom takist að halda sér uppi þar sem Domo*Kun* hafa misst stjóra sinn og teamb ættu að vinna þá í lokaleiknum. Þar með þyrftu skytturnar ekki endilega að vinna leik sinn gegn Glæsi Akranes til að halda sér uppi. Já kannski mætti ég hvíla suma leikmenn minna en ég geri. Ástæðurnar fyrir því hversu mikið ég nota varamennina er vegna þjálfunar og svo líka ef bestu leikmennirnir hafa lélegt úthald. Já vonandi gengur þetta vel hjá þér og þú tryggir þér titilinn.
|
|
|
Post by noteboom on Dec 6, 2007 16:42:45 GMT 1
Vona að þið klárið dæmið báðir tveir.
'Eg vona að ég bjargi mér. Tóm steypa að koma sér í þessi vandræði, var of værukær um mitt mót og það setti pressu á mig.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 6, 2007 21:03:01 GMT 1
Vona að þið klárið dæmið báðir tveir. 'Eg vona að ég bjargi mér. Tóm steypa að koma sér í þessi vandræði, var of værukær um mitt mót og það setti pressu á mig. Takk og ég vona að þú reddir þér!
|
|
|
Post by blesi on Dec 7, 2007 0:20:19 GMT 1
Þakka þér Noteboom og það vona ég virkilega að þú haldir þér uppi, sérstaklega þar sem þú átt alveg vel að vera með lið í það - og með þennan magnaða unga markahrók innanborðs. Já og þakka þér líka jonhelgi og gangi þér vel í lokaleik mótsins.
|
|
|
Post by jonhelgi on Dec 8, 2007 20:47:23 GMT 1
Til hamingju með titilinn blesi og Noteboom með að ná að halda þér uppi. Mér tókst að vinna helsta keppinautinn um annað sætið nokkuð örugglega þrátt fyrir að hafa ekki skorað í a.m.k. síðustu 5 mínúturnar enda kominn með það gott forskot að það hefði verið alveg ótrúlegt ef ég hefði tapað því niður.
|
|