|
Post by blesi on Jul 3, 2007 21:51:58 GMT 1
Já. Eins og menn sem hafa álpast hingað inn sjá þá erum við búnir að fá sérborð hvar við getum spjallað saman okkar á milli. Þar sem ég var nýverið kosinn landsliðsþjálfri (með 2 atkvæðum gegn 1) er ég nú á fullu í því að leita að mönnum í liðið. Því vil ég hvetja ykkur, kæru samlandar, til að setja hér inn, eða senda póst á mig, ef þið rekist á leikmenn sem gætu átt erindi í landsliðið. Menn þurfa almennt að vera komnir yfir 15.000 í TSI og helst vel það. Einnig vil ég hvetja menn til að þjálfa duglega unga og efnilega menn sem koma upp úr unglingaakademíunni og þá helst að halda sig við einhverja ákveðna stöðuþjálfun þar sem það mun skila sér í sterkara landsliði í framtíðinni. Ef mönnum dettur í hug að þjálfa hornamenn þá væri það gríðarlega gott fyrir landsliðið en framboð á hornamönnum virðist fremur dapurt. Svo dapurt meira að segja að ég er að gæla við það að skipta um þjálfun og reyna að framleiðis sæmilega hornamenn. Læt þetta nægja í bili en vona að ég fái einhver viðbrögð hér.
P.S. Hvet þá sem lesa þetta að benda öðrum á að kíkja við.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 8, 2007 23:58:17 GMT 1
Sæll! Ég var að byrja í þessum leik í gær og veit þar af leiðandi minna en ekkert um leikinn. En þegar þú nefnir TSI þá áttu við það sem er kallað Verðgildi er það ekki?
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 9, 2007 0:03:07 GMT 1
Hvað getur maður gert til að auka líkurnar á að fá góðan leikmann úr unglingaakademíunni?
|
|
|
Post by blesi on Aug 9, 2007 19:10:24 GMT 1
Sæll og velkominn til leiks.
TSI hefur verið þýtt sem verðgildi jú. Til þess að auka líkurnar á að fá góðan mann úr unglingaakademíunni ferðu í fjármál. Þar, undir inneign, geturðu valið "breyta fjárhagseiningum". Þegar þar inn er komið velurðu svo við hvað þú vilt bæta einingum, en einungis er hægt að bæta við 30 einingum í viku og það tekur því nokkurn tíma að koma sér upp í hámarkið (250). Hér er líka ekki úr vegi að taka það fram að skapari leiksins hefur gefið það út að það hafi ekkert upp á sig að hafa meira en 50 einingar í sjúkraþjálfara. Hinu ættirðu hins vegar að reyna að koma alveg upp í 250, í það minnsta að mínu mati og er ég með það svoleiðis. Endilega láttu mig svo vita ef þú vilt aðstoð með eitthvað annað.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 9, 2007 21:49:32 GMT 1
Takk fyrir svörin. Hvenær á maður að stækka völlinn/handboltahöllina? Á maður kannski að bíða með það og bæta frekar við einingum?
|
|
|
Post by blesi on Aug 9, 2007 22:41:07 GMT 1
Úff, góð spurning. Þar sem ég var með fyrstu stjórunum á Íslandi fór ég bara svolítið eftir "gut feeling". Annars auðvitað er ákveðinn grunnkostnaður þar eins og í Hattrick þannig að ég hugsa að það borgi sig að bíða aðeins. Þá áttu líka séns á því að fá almennilega leikmenn upp úr unglingaliðinu og/eða þjálfa leikmenn þína betur. Það að ná í fínan ungan leikmann getur gefið miklu meira í vasann en að hafa örlítið stærri leikvang.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 10, 2007 20:14:54 GMT 1
Já best að sýna smá þolinmæði. Ég var fljótur að ná mér í markvörð úr unglingaliðinu. Hann er alveg þokkalegur held ég en ekkert landsliðsefni þar á ferðinni.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 11, 2007 13:57:40 GMT 1
Þetta var nú alveg magnað, sigur í fyrsta deildarleiknum gegn efsta liðinu á útivelli! Þetta verður nú ekki toppað held ég! ;D Svo í þokkabót var þetta lið búið að vinna alla sína leiki gegn liðunum sem ekki eru bot.
|
|
|
Post by blesi on Aug 13, 2007 11:07:16 GMT 1
Heyrðu já til hamingju með það. Andskoti vel "stolið" hjá þér þarna í lokin...og það á útivelli!
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 13, 2007 12:12:29 GMT 1
"Andskoti vel "stolið" hjá þér þarna í lokin...og það á útivelli!" Já takk fyrir. Ég fattaði eftir leikinn að aðalvítaskyttan í leiknum var markvörðurinn en hann er nákvæmlega engin vítaskytta! Hann skoraði samt úr einu af þeim. Spurning hvað hefði gerst ef ég hefði verið með alvöru vítaskyttu? Hefði leikurinn þá orðið þetta jafn eða hefði ég unnið með nokkurra marka mun? Ég hef það á tilfinningunni að sterkustu hliðar liðsins séu leikstjórnandinn (skoraði 12 mörk í sínum fyrsta leik), línumaðurinn og markvarslan. En ég fór í að þjálfa markvörsluna, fótavinnuna og aðalmarkvörðurinn er strax búinn að hækka sig. Ég er líka búinn að ná mér í 18 ára skyttu úr unglingaliðinu, hann hefði mátt vera betri en hann er þjálfanlegur og þó fótavinnan sé ekki gríðarlega há þá eru hinir hæfileikarnir á nógu háu plani eða þannig. Ég stend í vallarstækkun og á 2 heimaleiki gegn alvöru liðum í vikunni sem ég vona að skili einhverju til baka upp í kostnaðinn.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 13, 2007 12:26:55 GMT 1
Tvær spurningar um varnaruppstillingu: 1) Er þetta miðað við fyrri og seinni hálfleik eins og það er sett upp neðst á liðsuppstillingar síðunni? 2) Breytir í raun einhverju hvernig maður stillir upp vörninni?
|
|
|
Post by blesi on Aug 13, 2007 19:15:55 GMT 1
ohm.proboards36.com/index.cgi?board=feaq&action=display&thread=1164405997Það skiptir engu máli hvernig þú stillir vörninni upp. Að því leyti er leikurinn voðalega takmarkaður, þ.e. maður gerir lítið annað en að ná í unglingaliðsleikmenn og þjálfa þá og svo selja leikmenn. Og jú, velja bestu leikmennina í liðið. En það er nú reyndar eitt af því sem mér líkar ágætlega við í þessum leik þar sem ég er líka í Hattrick og þar pælir maður svolítið meira.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 13, 2007 22:14:21 GMT 1
ohm.proboards36.com/index.cgi?board=feaq&action=display&thread=1164405997Það skiptir engu máli hvernig þú stillir vörninni upp. Að því leyti er leikurinn voðalega takmarkaður, þ.e. maður gerir lítið annað en að ná í unglingaliðsleikmenn og þjálfa þá og svo selja leikmenn. Og jú, velja bestu leikmennina í liðið. En það er nú reyndar eitt af því sem mér líkar ágætlega við í þessum leik þar sem ég er líka í Hattrick og þar pælir maður svolítið meira. Já mig minnti að ég hefði séð þetta með vörnina einhvers staðar. Hvaða lið ertu með í Hattrick? Ég er sjálfur með Kick & Run og ég er ekki frá því að liðið sé hugsanlega eina liðið sem hefur verið svona lengi að og ekki komist upp úr IV deildinni! ;D
|
|
|
Post by blesi on Aug 13, 2007 22:55:04 GMT 1
Haha! jú ég hef einmitt tekið eftir þér á spjallborðinu þar, hvar maður er samt alltof latur við að skrifa þó maður sé duglegur við að kíkja inn. Liðið mitt er nesiblesi og hef ég verið í IV.2 frá því að ég byrjaði og er ekkert á leiðinni þaðan alveg strax. Er bara að byggja upp hægt og rólega.
|
|
|
Post by jonhelgi on Aug 14, 2007 1:50:51 GMT 1
Já gangi þér vel með uppbygginguna. Ég ætti fyrir löngu að vera kominn upp í III deild (liðið vantar ekki styrkleikann til þess) en óhöpp og kannski rangar ákvarðanir hafa komið í veg fyrir það.
|
|